Innlent

„Sannarlega eftirsjá að Hönnu Birnu“

Sveinn Arnarsson skrifar
Skiptar skoðanir eru innan þingheims um afsögn innanríkisráðherra.
Skiptar skoðanir eru innan þingheims um afsögn innanríkisráðherra. Vísir
Skiptar skoðanir eru meðal þingmanna um afsögn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fráfarandi innanríkisráðherra. Fréttablaðið leitaði viðbragða nokkra þeirra.

„Afsögn innanríkisráðherra kemur mér ekki á óvart,“ segir Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. „Mér finnst hún hefði átt að gera þetta fyrir löngu til að leyfa stjórnsýslunni að njóta vafans. Það er mikil ábyrgð sem fylgir því að sitja í ráðuneyti og þaðan eiga ekki að fara upplýsingar. Menn geta líka lært af þessu að þeir eiga að koma hreint fram og ekki reyna að hylja spor sín eða samstarfsmanna sinna.“

„Ég virði ákvörðun Hönnu Birnu,“ segir Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Það er ekkert skrýtið að hún gefist upp á þessu því það er ekki vinnandi við þessi skilyrði. Það er mikið búið að mæða á henni úr öllum áttum. Menn eru sammála um að það er ekki verjandi að persónuupplýsingar leki úr ráðuneytinu, sama hver á í hlut, það á ekki að gerast.“

„Ég virði yfirlýsingu hennar og það sem þar kemur fram,“ segir Sigríður Magnúsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. „Hins vegar er eftirsjá að því frá mínu brjósti að Hanna Birna skuli hverfa af ráðherrastóli. Hún er kvenskörungur og sem kvenréttindakona finnst mér þetta miður. Ég hef tekið það nærri mér og fundist leitt hvernig málið hefur verið blásið út. Það verður sannarlega eftirsjá að Hönnu Birnu. Ég er sannfærð um það að slíkur kvenkostur muni eiga góða framtíð hvar svo sem hún haslar sér völl.“

„Ég styð Hönnu Birnu, þetta er ákvörðun sem hún hefur tekið sjálf, en ég fagna því að hún ætli að halda áfram í stjórnmálum,“ segir Elín Hirst, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Það segir sig sjálft að þegar ráðherra segir af sér þá er það ekki út af engu. En ég fagna því svo sannarlega að hún skuli ætla að sitja áfram sem þingmaður með okkur í stjórnmálum.“

„Þessi gjörningur kemur mér ekki á óvart og var í raun bara tímaspursmál,“ segir Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar. „Hún hefði auðvitað átt að stíga til hliðar um leið og málið kom upp. Það gengur ekki að ráðherra skuli hlutast til um rannsókn á eigin ráðuneyti. Sá lærdómur sem við getum dregið af þessu er að vanda betur til verka þegar ráðnir eru aðstoðarmenn og sýna starfinu sem slíku ákveðna auðmýkt.“


Tengdar fréttir

Biður enga afsökunar á lekamálinu

Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi innanríkisráðherra, biður enga hlutaðeigandi afsökunar á lekamálinu í yfirlýsingu sinni sem hún sendi til fjölmiðla í dag vegna afsagnar sinnar sem innanríkisráðherra.

Hanna Birna hættir

Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði af sér sem innanríkisráðherra í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×