Innlent

„SA hafa ekki hlustað á kröfugerð okkar“

Sveinn Arnarsson skrifar
Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands.
Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands.
Vinnumarkaður „Ég býst ekki við öðru en að við fáum umræðu um kröfur okkar, Samtök atvinnulífsins hafa ekki opnað inn á það að ræða kröfugerðina hingað til,“ segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. 

Fundur SA og Rafiðnaðarsambandsins fer fram í dag í húsakynnum ríkissáttasemjara. Kröfugerðin er skýr að mati Kristjáns Þórðar. „Við leggjum höfuðáherslu á að auka framleiðni, fækka yfirvinnutímum og hækka dagvinnulaun í því skyni að menn geti lifað af þeim launum. Þannig næst framleiðni og árangur að okkar mati. Á þetta hefur SA ekki viljað hlusta.“

Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, segir kröfugerð þeirra langt út fyrir mörk skynseminnar og segir þessar stéttir vera í efri hluta millitekna í landinu. „Það er ljóst að í þeirri stöðu sem upp er komin núna þar sem kjarasamningar hafa náðst við stóran hluta launþega á almennum vinnumarkaði þá erum við ekki að tala við aðra hópa um hærri samninga heldur aðeins útfærslu á kjarasamningum sem hentar ákveðnum stéttum,“ segir Þorsteinn.

Kröfugerð þeirra gengur mun lengra en var samið um við Flóabandalagið og ég sé engin rök fyrir því að hópur sem er í efri hluta millitekna eigi að fá meiri hækkun en hópar með lægstu tekjurnar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×