Viðskipti innlent

„Partýið er að byrja aftur“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri DataMarket.
Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri DataMarket. Vísir/Valli
Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri DataMarket, segist skynja það að margir Íslendingar hlakki til næstu bólu. Enginn virðist velta nægilega vel fyrir sér hvernig eigi að koma í veg fyrir að hún endi með kunnuglegum hætti. Væntanlega þarf að minna fæsta Íslendinga á fall íslensku bankanna haustið 2008 með tilheyrandi falli krónunnar, hækkun á lánum og þar langt fram eftir götunum.

„Það sem skelfdi mig samt var að það var eins og marga hlakkaði til næstu bólu, og enginn að velta of mikið fyrir sér hvernig ætti að koma í veg fyrir að hún endi eins og síðast.“

Hjálmar minnir á að um bólu sé að ræða sem eigi að blása upp með stórframkvæmdum.

„Það hefur ekkert gerst sem tala má um sem sjálfbæra eða langtíma uppsveiflu. Ferðaiðnaðurinn gæti verið undantekning ef gripið er til ráðstafana til að ráða við núverandi fjölda áður en bakslag kemur í ímyndina, en ferðamannaiðnaður byggir á ósérhæfðum og láglaunuðum störfum.“

Að öðru leyti hafi fjölbreytnin í hagkerfinu ekkert aukist og jafnvel minnkað.

„enda ekki aðlaðandi að fjárfesta í öðru en orku-, útgerðar- eða ferðatengdum verkefnum eins og staðan er og hefur verið. Og það er verið að selja bankana, þar sem mikill hljómgrunnur virðist fyrir því að handstýra þeim (aftur) í eigu innlendra aðila sem hafa aldrei rekið banka áður. Sumir tala svo jafnvel um vaxtamunarviðskipti,“ segir Hjálmar áhyggjufullur.

Hann spyr í lokin á færslu sinni hvort einhver geti stafað 2003?

„Gleyma menn öllu á 12 árum? Núna er tíminn til að staldra við, hugsa og vanda sig.“

Ég skynjaði það sterkt á Íslandi síðustu vikur að "partíið er að byrja aftur", enda líta hagvísarnir flestir vel út...

Posted by Hjalmar Gislason on Sunday, June 28, 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×