Sport

„Öllum sama um feitu handleggina á Rondu“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronda verður ekki ánægð með þessi ummæli.
Ronda verður ekki ánægð með þessi ummæli. vísir/getty
Það eru komnir níu mánuðir síðan Ronda Rousey steig síðast í búrið hjá UFC.

Það sem meira er þá er hún ekkert væntanleg á næstunni. Ronda mun í fyrsta lagi berjast aftur í janúar en það gæti orðið enn síðar.

Ronda tapaði síðast fyrir Holly Holm og það mjög illa. Alla tíð síðan er búið að tala mikið um hverri hún berst gegn næst. Aðrar bardagakonur eru að verða þreyttar á þessu endalausa tali um Rondu.

Julianna Pena hefur nú stigið fram fyrir skjöldu og spurning hvort hún tali fyrir hönd hinna stúlknanna í UFC líka?

„Það er öllum sama um Rondu og feitu handleggina hennar. Hún er eins og keisari án klæða. Hún brotnaði,“ sagði Pena pirruð og komst fyrir vikið í fjölmiðla um allan heim þökk sé Rondu.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×