„Verður að vera yfir allan vafa hafið“ 25. maí 2013 13:23 mynd/pjetur
Kosningaferlið verður að vera yfir allan vafa hafið og misræmi í framkvæmd kosninga verður að laga. Þetta segir umboðsmaður Pírata sem fylgdist með á talningarstað í kosningunum í apríl. Píratar hafa kært framkvæmd kosninganna. Áhyggjur Pírata beinast að sjálfri framkvæmd kosninganna og skipulagi. Björn Þór Jóhannesson var umboðsmaður á talningarstað í Suðurkjördæmi. Hann bendir á að mikið misræmi sé á framkvæmd, talningu og kosningu milli kjördæma og kosningastaða. „Það virðist vera að hver kjörstjórn sé að túlka kosningalögin á mismunandi hátt, en við teljum að þetta ætti að vel skilgreint og yfir allan vafa hafið.“ Björn bendir meðal annars á að hlutverk umboðsmanna flokkanna á kjörstað sé mismunandi eftir kjördæmum. Þannig voru umboðsmenn í Suðurkjördæmi settir í að flokka atkvæði á meðan kollegum þeirra í Reykjavík var meinað að koma inn í talningaherbergi. Í athugasemdum Pírata kemur einnig fram að sjálf talning kjörseðla hafi verið mismunandi eftir talningarstöðum. Þannig voru atkvæðin talin upp úr kassa í Suðurkjördæmi og látin stemma við kjörbækur um fjölda atkvæða. Píratar benda á að það hafi ekki verið gert í Reykjavíkurkjördæmi suður. „Þetta voru það mörg atkvæði og ósamræmi það mikið á milli kjördæma að okkur fannst rétt að þetta þyrfti að rannsaka, hvernig þetta fór fram allt saman.“
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira