Innlent

„Hann er að kaupa sér tíma í pólitískum tilgangi“

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Samsett mynd/Loftmyndir ehf.
„Það er engin tilviljun að ráðherra kemur með þetta útspil núna, fimm mínútum fyrir kosningar,“ segir Elías J. Bjarnason, íbúi á Álftanesi, um tilmæli innanríkisráðherra til bæjaryfirvalda í Garðabæ og Vegagerðarinnar um endurskoðun á lagningu nýs Álftanesvegar. „Hann er að kaupa sér tíma í pólitískum tilgangi. Hann veit að uppistaðan af þessu fólki sem mótmælti veginum eru liðsmenn VG.“

Elías, sem komið hefur að bæjarmálum á Álftanesi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, segir leiðtoga Hraunavina flokksbundinn VG en samtökin hafa mótmælt vegaframkvæmdunum og segja þær leggja umhverfi Gálgahrauns í hættu.

„Það liggur ljóst fyrir að forystusauðurinn Gunnsteinn Ólafsson er flokksbundinn í VG og var í bæjarmálapólitíkinni á Álftanesi. Hann má auðvitað hafa sínar skoðanir á þessu en fólk er orðið þreytt á því að örfáir einstaklingar geti leikið þennan leik aftur og aftur, að tefja og koma í veg fyrir umbætur í þessu landi.“

Varðar öryggi allra

Elías sendi yfirlýsingu á fjölmiðla fyrir hönd hópsins „Við sem viljum nýjan Álftanesveg“ og segir í yfirlýsingunni að Guðsteinn hafi ítrekað komist upp með rangfærslur og staðreyndavillur í drottningarviðtölum stærstu fjölmiðla landsins. Málið er sagt varða öryggi allra sem leið eiga um veginn, þar með talið forseta Íslands og erlendra gesta hans.

„Þarna hafa orðið mjög alvarleg slys, fyrst og fremst vegna þess hvernig vegurinn er. Það er útilokað að gerðar verði vegbætur á núverandi vegi og þá væri verið að brjóta á þeim sem búa við gamla veginn. Þegar þetta fólk keypti eignir sínar lá það alltaf ljóst fyrir í öllu skipulagi að  gamli vegurinn yrði bara tengivegur inn í hverfið en ekki sú stofnbraut sem hann er í dag. Ef það hefði ekki verið á skipulagi hefði sjálfsagt eitthvað af þessu fólki ekki keypt þarna.“

Elías segir rangt að nýi vegurinn muni liggja í gegn um Gálgahraun, heldur eigi hann að liggja í gegn um Garðahraun. Útspil innanríkisráðherra sé móðgun við vegfarendur um Álftanesveg, og ekki síst við þá sem lent hafa í slysum á veginum.

„Við mótmælum því þeim tilmælum sem ráðherra hefur sent Vegamálastjóra og ljóst að ráðherra er hér að grípa til örþrifaráða nokkrum dögum fyrir kosningar.“


Tengdar fréttir

Umdeildur vegur verður lagður

Vegagerðin hefur ákveðið að semja við verktaka um lagningu umdeilds Álftanesvegar um Gálgahraun eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði frá kæru nokkurra íbúa við hraunið. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær.

„Hrein sóun á landi og almannafé“

"Þótt sumir sjái enga fegurð í hrauni þá þarf ekki sérfræðing til að sjá að mislæg gatnamót fyrir 2.500 manns er hrein sóun á landi og almannafé," segir Andri Snæ Magnason í grein um fyrirhugaðan Álftanesveg yfir Gálgahraun í Garðabæ. Mikill styr hefur staðið um þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru í hrauninu.

Vilja að verksamningi um Álftanesveg verði frestað

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands skora á framkvæmdaraðila nýs Álftanesvegar, að fresta undirritun verksamnings við Íslenska aðalverktaka þar til fyrir liggur fullnægjandi úttekt á núverandi vegstæði í samræmi við svokallaða núlllausn samkvæmt lögum. Þau minna á að eldhraun eins og Gálgahraun njóta sérstakrar verndar samkvæmt náttúruverndarlögum.

Kæru vegna Álftanesvegar vísað frá

Vegagerðin hefur ákveðið að semja við verktaka um lagningu umdeilds Álftanesvegar um Gálgahraun eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði frá kæru nokkurra íbúa við hraunið.

Sjáendur óttast slys vegna reiðra dverga

Félagsskapurinn Hraunavinir berst gegn lagningu nýs Álftanesvegar um Gálgahraun. Sjáandinn og píanókennarinn Erla Stefánsdóttir segir álfaklettinn Ófeigskirkju fara undir veginn. Erla óttast slys vegna reiði dverganna í hulduheimum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×