Erlent

„Notið ekki harmleikinn til að ná fram pólitískum markmiðum“

Atli Ísleifsson skrifar
Forsetinn leggur áherslu á nauðsyn þess að fá hóp sérfræðinga frá Alþjóðaflugmálastofnuninni til að rannsaka atburðinn þar sem MH17-vél Malaysia Airlines var skotin niður á fimmtudaginn og 298 manns fórust.
Forsetinn leggur áherslu á nauðsyn þess að fá hóp sérfræðinga frá Alþjóðaflugmálastofnuninni til að rannsaka atburðinn þar sem MH17-vél Malaysia Airlines var skotin niður á fimmtudaginn og 298 manns fórust. Vísir/AFP
Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir að enginn eigi rétt á að nýta sér harmleikinn í Úkraínu til að ná fram eigin pólitískum markmiðum.

Pútín lét orðin falla í sjónvarpsviðtali og benti þar á að Rússar hefðu „ítrekað hvatt stríðandi fylkingar í austurhluta Úkraínu til að leggja niður vopn og hefja friðarviðræður.“

Forsetinn lagði sömuleiðis áherslu á nauðsyn þess að fá hóp sérfræðinga frá Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) til að rannsaka atburðinn þar sem MH17-vél Malaysia Airlines var skotin niður og 298 manns fórust á fimmtudaginn. „Gera verður allt til að tryggja öryggi alþjóðlegra sérfræðinga.“

Á vef sænska ríkisútvarpsins segir að John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafi veist hart að Rússum og forsetanum rússneska á sunnudaginn. Kerry sagðist hafa fengið nægar upplýsingar til að vita hvernig að árásinni hafi verið staðið og sakaði Pútín um að ekki hafa ekki stjórn á atburðarásinni. „Rússar styðja aðskilnaðarsinna, Rússar afhenda þeim vopn, Rússar þjálfa hermennina en hafa samt ekki gert neitt til að hafa stjórn á atburðum,“ sagði Kerry.


Tengdar fréttir

Loka lofthelgi austur Úkraínu

Evrópska flugumferðarstofnunin Eurocontrol segir að yfirvöld í Kænugarði hafi lokað lofthelginni yfir austurhluta landsins.

Leggja niður vopn í tvo til fjóra daga

Einn leiðtoga aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu hefur heitið því að þeir muni leggja niður vopn í tvo til fjóra daga vegna árásarinnar á MH17 í gær.

Hvernig virkar eldflaugakerfið sem skaut niður flug MH17?

Sönnunargögnin hrannast upp um óbeina aðild Rússa að því þegar farþegaþota Malaysian Airlines var skotin niður yfir Úkraínu. Til er hljóðupptaka af samtali leiðtoga aðskilnaðarsinna og rússnesks embættismanns sem bendlar málið við Rússa. Þotan var skotin niður með tæknilega fullkomnu eldflugakerfi.

Tæknilega fullkomið Buk-eldflaugakerfi grandaði MH17

Flókið og tæknilega fullkomið Buk-eldflaugakerfi var notað til að granda MH17 vél Malaysian Airlines. Úkraínsk stjórnvöld saka rússneska aðskilnaðarsinna um að hafa fjarlægt mikilvæg sönnunargögn á staðnum þar sem vélin var skotin niður með þeim afleiðingum að allir um borð fórust.

Þjóðarsorg í Hollandi

Hollendingar eru í áfalli vegna dauða 173 Hollendinga sem fórust þegar MH17 var skotin niður í austurhluta Úkraínu í gær.

Harmleikurinn í Úkraínu

Flugvélin var af gerðinni Boeing 777 á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur þegar hún hvarf af ratsjám. 298 týndu lífi.

Deilan hættuleg heimsfriði

Eiríkur Bergmann segir Pútín að einhverju leyti bera ábyrgð á þeirri hernaðaraðgerð að skjóta niður MH17.

Clinton sendir Rússum tóninn

Hillary Rodham Clinton sagir að leiðtogar Evrópu ættu að auka þrýsting á Vladimír Pútín, forseta Rússlands, komi í ljós að Rússar hafi komið að því að MH 17 hafi verið skotin niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×