Tónlist

"Mozart teknósins“ snýr aftur

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Aphex Twin er fríður maður.
Aphex Twin er fríður maður.
Bretinn Richard D. James, best þekktur sem Aphex Twin, er vafalaust einn ástsælasti tónlistarmaður heims. Tímaritið The Guardian hefur kallað hann „frumlegasta og áhrifamesta karakter raftónlistarsenunnar“ og tónlistartímaritið MOJO krýndi hann „Mozart teknósins“ á tíunda áratugnum.

Svo virðist sem Aphex hafi vaknað úr löngum dvala í ár, flestum tónlistarunnendum til mikillar gleði. Hann hefur nú tilkynnt um nýja plötu í bígerð að nafni Syro en seinasta platan drukQs kom út fyrir 13 árum og var talið meistarastykki sem spannaði margar tónlistarstefnur.

Aphex er meðal annars þekktur fyrir mikið skopskyn og dularfullan prakkaraskap en síðastliðinn laugardag mátti glitta í loftbelg svífandi yfir Lundúnaborg merktum Aphex Twin merkinu fræga. Þetta var strax túlkað sem vísbending um mögulega endurkomu meistarans en tveimur dögum seinna var hlekkur settur inn á Twitter síðu Aphex þar sem hann gaf meðal annars upp nafnið á plötunni og lagalistann. Ekki var þó allt með felldu þar sem ómögulegt var að nálgast hlekkinn á hefðbundnum netvöfrum.

Þetta er annar glaðningurinn fyrir aðdáendur hans í ár. Óútgefna platan Caustic Window, gerð árið 1994 undir því nafni (eitt af fjölmörgum alteregóum hans) var loksins gerð fáanleg í ár eftir að upprunaleg prufuútgáfa plötunnar á vínyl var auglýst til sölu á netinu. Platan var keypt fyrir 47.000$ eða um fimm og hálfa milljón íslenskra króna. Það var höfundur Minecraft leikjanna, Svíinn Markus Persson sem gerði kaupin og fékk án efa þónokkur nördastig í kladdann fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×