Lífið

„Mjög pirrandi að sjá svona“

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Þórunn Árnadóttir hönnuður er ekki ánægð með að búið sé að gera eftirlíkingu af kertinu hennar, Pyro Pet, en erfitt er fyrir hönnuði að koma í veg fyrir svoleiðis.
Þórunn Árnadóttir hönnuður er ekki ánægð með að búið sé að gera eftirlíkingu af kertinu hennar, Pyro Pet, en erfitt er fyrir hönnuði að koma í veg fyrir svoleiðis.
„Mér finnst þetta ekki vera heiður og bara mjög pirrandi að sjá svona eftirlíkingar,“ segir hönnuðurinn Þórunn Árnadóttir, sem á heiðurinn af Pyro Pet, kisukerti sem er sérstakt að því leytinu til að þegar það brennur niður birtist beinagrind úr áli.

Kertið hefur vakið mikla lukku út um allan heim en nýverið fékk Þórunn ábendingu frá stórum dreifingaraðila um að búið væri að gera eftirlíkingu af kertinu hennar.

Eftirlíkingin er bangsakerti sem nefnist Skeleton Candles og breytist einmitt í beinagrind úr áli. Líkindin eru sláandi en Þórunn safnaði fyrir framleiðslu Pyro Pet á Kickstarter og er það sama leið og fólkið á bakvið eftirlíkinguna er að fara. 

„Mér finnst mest skrítið að Kickstarter hafi hleypt þessu í gegn hjá sér, ég er í góðu sambandi við fólkið þar sem öll keyptu sér kisukertið á sínum tíma og hrósuðu hönnuninni. Það er leiðinlegt þegar svona kemur upp og sérstaklega þar sem Pyro Pet er á viðkvæmu stigi núna, fyrsta sending er uppseld en von á næstu í byrjun október.“

Kisukertin hennar Þórunnar hafa heldur betur slegið í gegn og eru nú seld út um allan heim, meðal annars í búðinni Urban Outfitters. Upphaflega ætlaði Þórunn að safna fyrir framleiðslu á fjögur þúsund kertum en hefur nú selt um 10 þúsund stykki. 

„Sem betur fer hefur okkur tekist að koma Pyro Pet það vel á framfæri síðasta árið að við höfum verið að fá ábendingar um eftirlíkinguna frá viðskiptavinum okkar. Það er gott og ég vona að það haldist þannig, það væri ekki gaman ef kertið verður eitt af mörgum alveg eins.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×