Enski boltinn

„Mikið að hugarfari leikmanna United þegar kemur að síðustu mínútum“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
José Mourinho var ekki sá vinsælasti þegar hann setti stóra Belgann inn á.
José Mourinho var ekki sá vinsælasti þegar hann setti stóra Belgann inn á. vísir/getty
Manchester United gerði fimmta jafnteflið í röð í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn þegar það missti 1-0 forystu í 1-1 á síðustu mínútum gegn Everton.

Marouane Fellaini, sem er að verða óvinsælasti leikmaður Manchester United, fékk á sig klaufalega vítaspyrnu sem Leighton Baines skoraði úr. José Mourinho hefur fengið mikla gagnrýni fyrir að setja Belgann stóra inn á undir lok leiksins.

Mourinho gerði lítið úr spurningum blaðamanna um þessa skiptingu á blaðamannafundi eftir leik og sagði Everton ekki lengur vera lið sem sendir boltann mikið heldur mun beinskeittara lið. Því vildi hann fá tveggja metra mann inn á til að hjálpa varnarlínunni.

Jermaine Jenas, fyrrverandi landsliðsmaður Englands, var spurður út í þessi ummæli og skiptingu Mourinho í þættinum Match of the Day 2 á sunnudaginn og hvort hann væri sammála Portúgalanum.

„Algjörlega. Starf stjórans á hliðarlínunni er að reyna að reikna út hvað hann heldur að gerist í leiknum og hvernig hitt liðið getur gert honum erfitt fyrir. Ég var meira og minna sammála þegar Fellani var settur inn á. Mourinho vissi að hann ætti eftir að þurfa að verjast mikið af boltum inn á teiginn og föstum leikatriðum,“ sagði Jenas.

David De Gea horfir á eftir boltanum í netinu.vísir/getty
Troy Deeney, framherji Watford, var gestur í þættinum og hann var spurður hvort ekki hefði verið betri að setja inn á þriðja miðvörðinn, Eric Bailly, sem er kannski betri í loftinu en Fellaini.

„Mourinho talaði um á blaðamannafundinum að miðverðirnir sínir væru búnir að vera frábærir í síðustu leikjum og því vildi hann ekki rugga þeim báti. United stýrði leiknum algjörlega en missti bara af sigrinum,“ sagði Deeney.

Manchester United er núna fjórum sinnum á leiktíðinni búið að fá á sig mark eftir 80. mínútu og missa af fullt af stigum en liðið er í sjötta sæti með 21 stig, níu stigum frá Meistaradeildarsæti og þrettán stigum frá toppnum.

„Þetta er ekki sem þú býst við frá liði sem Mournho stýrir og hvað þá United-liði. Þess vegna er hann byrjaður að segja að United vinnur ekki titilinn á þessari leiktíð. Það er eitthvað mikið að hugarfari leikmanna United þegar kemur að síðustu mínútum leiksins,“ sagði Jermaine Jenas.

Alla umræðuna má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×