Innlent

„Mér finnst þetta bara ótrúlega sorglegt mál"

Hrund Þórsdóttir skrifar
Eggjum var kastað í tvö hús í Grindavík í nótt, að því er virðist í tengslum við umdeilt mál í bænum, þar sem grunnskólakennari er sakaður um að leggja börn í einelti. Móðir eins barnanna kveðst vilja að þau geti farið óhrædd í skólann.

Mikið hefur verið fjallað um eineltismál í Grindavík undanfarið, ekki síst mál kennarans og í Grindavík urðu tvö hús fyrir eggjakasti í nótt, að því er virðist í tengslum við eineltismálin. Annað af þeim stendur við Staðarhraun 50 og í meðfylgjandi myndskeiði má sjá hvernig húsið var útlítandi eftir eggjakastið.

„Strákurinn minn vaknaði klukkan þrjú í nótt við dynk á gluggann og þegar hann fór út að gá hvað væri um að vera sá hann að það var búið að kasta eggjum í húsið hjá okkur,“ segir Guðrún Kristjana Jónsdóttir, íbúi í húsinu. „Þetta er mjög leiðinlegt, ekki síst af því að hann sefur í þessu herbergi. Hvað ef yngri börnin mín hefðu verið sofandi þarna.“

Íbúar hússins við Staðarhraun tengjast málinu aðeins í gegnum vinskap en við Leynisbrún 15, þar sem heimilisfólkið vakanði einnig upp við það í morgun að búið var að kasta eggjum í húsið, búa systkini sem nú sækja einkakennslu utan skólans vegna málsins.

Sagan um einelti kennarans teygir sig aftur í tímann en í vetur var staðfest að hann hefði beitt stúlku í níunda bekk, dóttur Eydnu Fossádal, einelti. Stúlkan treystir sér ekki í skólann og hefur undanfarið dvalist utan bæjarins vegna málsins.

„Mér finnst þetta bara ótrúlega sorglegt mál sem hefði getað verið leyst á einfaldan hátt en er því miður orðið allt of stórt,“ segir Eydna.

Hvernig hefðir þú viljað leysa málið?

„Mér finnst að kennarinn hefði átt að vera áminntur,“ segir hún.

Kennarinn er enn við störf en Eydna vill að börnin geti farið óhrædd í skólann. Hún er tilbúin til sátta og eftir fund hennar með skólastjórnendum í dag ætla þeir að leggja fram nýja tillögu í málinu, í kvöld eða á morgun.

Foreldrar barnanna hafa vísað því til fagráðs eineltis og bæjarstjórinn kveðst hafa kallað eftir athugun menntamálaráðuneytisins.

Leitað var eftir viðbrögðum bæjarstjóra Grindavíkur, skólastjóra grunnskólans og sviðsstjóra fræðslusviðs vegna vinnslu þessarar fréttar, en þau kusu að tjá sig ekki um málið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×