Innlent

„Maður verður að vona það besta“

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur.
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur. VÍSIR/SKJÁSKOT
Íslenskur veðurfræðingur og sérfæðingur í loftslagsmálum segir að alþjóðasamfélagið verði að vona það besta og treysta á að alþjóðasamningar hefti stefnu Donalds Trump í að draga úr öllum áætlunum og fjárútlátum í málaflokka tengdum aðgerðaáætlunum í loftslagsmálum. Íslendingar séu í aðstöðu til að láta til sín taka.

Heimsíðu Hvíta hússins var umturnað strax eftir að Donald Trump tók við forsetaembætti á föstudag. Athygli vakti að starfsáætlun Hvíta hússins gegn loftslagsbreytingum var skipt út fyrir orkuáætlunina America First Energy Plan sem sögð er hafa hag Bandaríkjanna að leiðarljósi. Þar segir meðal annars að Trump ætli að draga úr öllum áætlunum og fjárútlátum í óþarfa málaflokka á borð við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.

Trump sagði á heimasíðu sinni fyrir kosningar að hann ætlaði sér einnig að draga Bandaríkin út úr Parísarsáttmálanum og stöðva allar greiðslur til loftslagsaðgerða á vegum Sameinuðu þjóðanna.

Þetta þarf kannski ekki að koma neinum á óvart þar sem Trump hefur farið mikinn í ummælum sínum um loftslagsbreytingar í viðtölum og á samskiptamiðlum undanfarna mánuði og ár.

En hvað þýðir þessa breytta stefna Bandaríkjamanna í loftslagsmálum fyrir Parísarsáttmálann og alþjóðasamfélagið?

„Maður verður að treysta því að forsetinn hafi ekki öll völd og ríkisstjórn hans. Að þingið geti gripið í taumanna. Maður verður að vera bjartsýnn hvað það varðar. Og að aðlþjóðasamningar hefti Bandaríkjamenn að einhverju leyti og skuldbindingar þar í þessum málum,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur og sérfræðingur í loftslagsmálum.

Hann telur að Íslendingar geti haft heilmikil áhrif í þessu samhengi.

„Íslendingar eiga auðvitað að láta til sín taka til dæmis innan Norðurskautsráðsins, þar sem við vinnum bæði með Bandaríkjamönnum og Rússum, og láta rödd okkar heyrast hvað þetta varðar. Maður verður í raun og veru bara að vona það besta. Maður verður að vona það að þó svo að bandaríkjaforseti sé á þessari skoðun, þá er hann ekki einráður í landinu. Að það séu skynsöm öfl sem haldi þessari ágætu þjóð á þokkalegu spori hvað þetta varðar,“segir Einar. 


Tengdar fréttir

Trump fundaði með Gore um loftslagsmál

Al Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjannai, fundaði í dag með Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna og dóttur hans Ivönku Trump, um aðgerðir í loftslagsmálum.

Ríkisstjórn Obama gefst ekki upp í loftslagsmálum

John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði að ríkisstjórn Barack Obama Bandaríkjaforseta muni nýta allar leiðir til að innleiða Parísarsáttmálann sem fyrst áður en Donald Trump tekur við sem forseti Bandaríkjanna




Fleiri fréttir

Sjá meira


×