Viðskipti innlent

„Lúppan” í SPRON-málinu: Milljarðar frá VÍS til SPRON og þaðan til Exista

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lán SPRON til Exista var framlengt fjórum sinnum og var seinasti gjalddagi þess 16. mars 2008. Það var aldrei greitt til baka.
Lán SPRON til Exista var framlengt fjórum sinnum og var seinasti gjalddagi þess 16. mars 2008. Það var aldrei greitt til baka. Vísir/GVA
Símtal sem spilað var í dómsal í SPRON-málinu í dag varpar ljósi á þann snúning sem fjallað er um í ákæru sérstaks saksóknara á hendur fyrrum forstjóra sjóðsins og fjórum stjórnarmönnum hans vegna tveggja milljarða króna lánveitingar SPRON til Exista þann 30. september 2008.

Umræddur snúningur snýr að því að VÍS lánaði 4 milljarða til Exista þann 18. september 2008. Fjórum dögum síðar var það lán framlengt til 29. september og svo aftur framlengt þá um einn dag. Þann 30. september endurgreiðir Exista svo lánið til VÍS en sama dag koma 2 milljarðar frá VÍS inn í SPRON. Sparisjóðurinn á svo að hafa lánað þá milljarða til Exista.

„Smá lúppa í gangi hérna”

Í símtalinu ræðir Valgeir Baldursson, þáverandi framkvæmdastjóri fjármálasviðs SPRON, við starfsmann í fjárstýringu sjóðsins. Valgeir bar vitni í málinu í dag og var símtalið borið undir hann.

Valgeir segir starfsmanninum að það sé „smá lúppa í gangi hérna.” VÍS vilji leggja þrjá milljarða inn hjá SPRON sem að SPRON þurfi svo að lána Exista aftur út. Valgeir spyr hvort að það sé einhver vandi við það að lána Exista milljarðana þrjá og segir starfsmaðurinn að þetta sé bara spurning um hvaða heimildir Guðmundur Hauksson, forstjóri sparisjóðsins, hafi án þess að fá kvittun stjórnar.

Birgir Jónasson, aðstoðarsaksóknari, spurði Valgeir hver hefði upphaflega komið að máli við hann vegna lánsins til Exista. Sagði hann það hafa verið Harald Þórðarson, framkvæmdastjóra fjárstýringar félagsins.

Einn aðili að koma með innlán, annar vildi fá útlán

Spurður út í hvað hann ætti við með orðinu “lúppa” sagði Valgeir:

„Það er svo sem engin sérstök meining. Þetta er bara orðalag sem ég valdi. Þarna er bara aðili sem er að koma með innlán og annar aðili sem vildi fá útlán. Í sjálfu sér er engin dýpri merking þarna.”

Valgeir sagði að forstjórinn, Guðmundur Hauksson, hefði verið upplýstur um gang mála varðandi lánið til Exista og „lúppuna” með VÍS en fyrir dómi kvaðst Guðmundur ekki hafa vitað um innlán tryggingafélagsins.

Í öðru símtali sem spilað var fyrir dómi og átti sér stað degi áður en lánið til Exista var samþykkt ræðir Valgeir við annan starfsmann SPRON um lánið. Segir hann að VÍS ætli að leggja inn tvo milljarða til SPRON „og við ætlum að lána Exista þá út í viku.”

Ræddi lánið ekki við stjórnarmenn SPRON

Valgeir leggur mikla áherslu á það í símtalinu að ekki megi greiða lánið út fyrr en daginn eftir þegar stjórn sjóðsins kemur saman á fundi og lánveitingin verður samþykkt.

Skúli Magnússon, einn af dómurunum í málinu, spurði Valgeir hvers vegna VÍS hefði ekki bara lánað Exista milljarðana tvo milliliðalaust í staðinn fyrir að fara í gegnum SPRON. Valgeir sagðist ekki geta svarað því.

Valgeir sagðist ekki hafa rætt um lánið við stjórnarmenn SPRON fyrir fundinn þar sem það var samþykkt. Þá kvaðst hann ekki muna hvernig lánið hefði verið kynnt á stjórnarfundinum og sagðist heldur ekki muna sérstaklega eftir umræðum um það. Fram hafði þá komið hjá ákærðu í málinu að Valgeir hefði séð um að kynna lánið fyrir þeim á fundinum.

Exista ekki aðili á millibankamarkaði en gat samt fengið peningamarkaðslán

Í fyrra símtalinu sem spilað var í dag ræða Valgeir og starfsmaður fjárstýringar um það hvort að það sé einhverjum vandkvæðum bundið að veita Exista peningamarkaðslán þar sem félagið sé ekki aðili að millibankamarkaði.

Aðspurður hvort að hann sjálfur hefði getað veitt peningamarkaðslán án samþykkis stjórnar hefði Exista verið aðili á millibankamarkaði sagði Valgeir svo ekki vera. Hann var þá spurður að því hverjir gátu fengið peningamarkaðslán.

Svaraði hann því til að það væru aðilar á millibankamarkaði og svo stærri aðilar á markaðnum sem væru að taka til sín fé og láta frá sér. Í þeim tilvikum hefði hvert og eitt lán verið metið fyrir sig.

Lán SPRON til Exista var framlengt fjórum sinnum og var seinasti gjalddagi þess 16. mars 2008. Það var aldrei greitt til baka. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×