Innlent

„Lítið um að vera í veðrinu“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hlýjast verður norðaustantil á landinu
Hlýjast verður norðaustantil á landinu Mynd/Skjáskot
Veðurstofan spáir ágætu veðri víðast hvar á landinu í dag. Lítið er um að vera í veðrinu líkt og veðurfræðingur orðar það í hugleiðingum sínum á vef Veðurstofu Íslands. Búast má við keimlíku veðri út vikuna.

„Það er hægur vindur á landinu þessa dagana og lítið um að vera í veðrinu. Nú í morgunsárið er þokuloft allvíða við strendur landsins, en það ætti að rofa til þegar líður á morguninn og hiti hækkar. Suðaustan- og austanlands er dálítil væta fram eftir degi, annars bjart með köflum en líkur á síðdegisskúrum. Á morgun verður keimlíkt veður, nema það léttir heldur til fyrir austan þó skúrirnir láti einnig sjá sig þar,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Hiti verður á bilinu 9-18 stig, svalast austan en þar mun þó hlýna á morgun. Skýjað verður suðaustan- og austanlands í dag en víðast hvar annarsstaðar má búast við góðu veðri. Hlýjast verður á Norðausturlandi en reikna má með 17 stiga hita á Akureyri í dag.

„Á föstudag er áfram lítið um að vera í veðrinu, hægur vindur og víða bjart, en um kvöldið lítur út fyrir dálitla rigningu sunnan- og vestanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Ísland mætir Austurríki á EM í Frakklandi klukkan fjögur í dag og vel ætti að viðra til þess að horfa á leikinn utandyra. Á Akureyri verður sérstakt EM-torg á Ráðhústorgi auk þess sem að EM-torgið á Ingólfsstorgi í Reykjavík verður á sínum stað.

Veðurhorfur næstu daga

Í dag, miðvikudag

Austlæg eða breytileg átt 3-8 metrar á sekúndu og bjart með köflum, en líkur á skúrum, einkum síðdegis. Að mestu skýjað suðaustan- og austanlands og dálítil rigning eða súld þar í dag, en rofar til á morgun. Hiti 9 til 18 stig, svalast austast, en hlýnar þar á morgun.

Á föstudag:

Sunnan og suðvestan 5-13 metrar á sekúndu og víða bjartviðri, en þykknar upp og fer að rigna Vestantil á landinu. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast norðaustanlands.

Á laugardag:

Suðvestan 5-13 metrar á sekúndu, skýjað og súld eða dálítil rigning í fyrstu, en léttir til fyrir norðan og austan. Vaxandi suðaustanátt og rigning suðvestanlands um kvöldið. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á norðaustanverðu landinu

Á sunnudag og mánudag:

Suðlæg átt, rigning eða skúrir og hiti 8 til 13 stig. Úrkomulítið norðaustantil á landinu og hiti 13 til 18 stig.

Á þriðjudag:

Suðvestlæg átt og víða skúrir, hiti 8 til 15 stig.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×