Innlent

„Leita þarf lausna án tafar en drepa ekki málinu á dreif með karpi“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vísir/Stefán
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps lýsir yfir „þungum áhyggjum“ vegna boðaðra lækkana á verði til sauðfjárbænda í komandi sláturtíð og skorar á hlutaðeigandi að leita allra leiða til að leysa þá „grafalvarlegu stöðu“ sem uppi er.

Sveitarstjórnin samþykkti samhljóða á fundi sínum í kvöld ályktun þar sem sagt er að verði boðaðar verðlækkanir á afurðaverði til sauðfjárbænda nú í haust að veruleika sé rekstrargrundvöllur sauðfjárbúa í landinu algerlega brostinn.

Ljóst er að mati sveitarstjórnarinnar að það muni hafa í för með sér hrun í búgreininni og í framhaldi af því stórfellda byggðaröskun „Sauðfjárrækt er undirstaða byggðar í héraðinu og þar af leiðandi hriktir í byggðinni þegar fótum er kippt undan þeirri starfsemi,“ segir í ályktuninni.

Sjá einnig: Sigurður Ingi telur að ríkið þurfi að styðja við sauðfjárbændur



Sauðfjárbúskapur er stærsta atvinnugrein innan Húnavatnshrepps og segir í ályktuninni að boðuð lækkun á verði til sauðfjárbænda muni hafa „gífurleg áhrif“ á afkomu heimila í Húnavatnshreppi og sveitarfélagsins í heild.

„Nú, annað árið í röð standa sauðfjárbændur frammi fyrir verulegri tekjuskerðingu og á komandi hausti af þeirri stærðargráðu að ekkert mun standa eftir af tekjum búanna til greiðslu á launum, þegar kostnaður við framleiðsluna hefur verið greiddur. Laun bænda vegna búrekstrarins verða því engin. Miklir fjárhagsörðugleikar blasa við, sérstaklega skuldsettum bændum. Kemur tekjuskerðing augljóslega harðast niður á þeim sem nýlega hafa byrjað búskap, sem eru í flestum tilfellum yngstu bændurnir,“ segir í ályktuninni.

Sveitarstjórn Húnavatnshrepps skorar á stjórnvöld, forystumenn bænda, sláturleyfishafa og aðra hlutaðeigandi að leita allra leiða til leysa þá „grafalvarlegu stöðu“ sem uppi er.

„Leita þarf lausna án tafar, en drepa ekki málinu á dreif með karpi um orsakir vandans.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×