Körfubolti

„Leikmaður númer fimmtán þarf að stoppa trash-talkið“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eins og kom fram í Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport í gær voru dómarar og þjálfarar með hljóðnema á sér þegar Keflavík tók á móti Tindastóli í Domino's-deild karla á dögunum.

Lengri útgáfa af innslaginu sem birtist í þættinum í gær má nú finna hér fyrir ofan. Þar má sjá stórskemmtileg samskipti dómara leiksins, þjálfara liða og leikmanna.

Tindastóll vann leikinn, 86-82, eftir að hafa haft mikla yfirburði í fyrri hálfleik. Keflvíkingar áttu fína endurkomu í síðari hálfleik en Stólarnir fögnuðu þó að lokum naumum sigri.

Leikurinn var sérstakur fyrir þær sakir að Jerome Hill, leikmaður Keflavíkur, var að mæta sínu gamla liði en hann hafði verið látinn fara frá Tindastóli á miðjum vetri. Samskipti hans og Helga Rafns Viggóssonar, fyrirliða Tindastóls, voru oft við suðupunkt eins og skilja má á ofangreindri fyrirsögn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×