Innlent

„Landspítalinn verður ekki rekinn án lækna“

Stefán Árni Pálsson skrifar
VISIR/GVA
Stjórn Félags læknanema harmar því að Læknafélag Íslands og Skurðlæknafélag Íslands sjái sig knúin til þess að boða til verkfalls en þetta kemur fram í ályktun frá félaginu.

Ekkert virðist geta komið í veg fyrir að verkfall lækna hefjist á mánudaginn eftir að samningafundur deiluaðila hjá ríkissáttasemjara rann út í sandinn í dag. Formaður samninganefndar lækna segir tilboð stjórnvalda óbreytt og enn beri því mikið í milli.

Næsti boðaði fundur deiluaðila er á mánudaginn, en á miðnætti sama dag hefjast fyrstu verkfallsaðgerðir lækna. Hver vinnustöðvun mun standa yfir í tvo sólarhringa í senn á sjö vikna tímabili.

Er þetta í fyrsta sinn sem læknar á Íslandi ákveða að nýta sér takmarkaðan verkfallsrétt sem komið var á fyrir tæpum 30 árum. Náist samningar ekki í tæka tíð munu læknar sem starfa samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands hefja verkfall næstkomandi mánudag.

„Ljóst er að verkfall lækna hafi í för með sér áhrif á starfsemi Landspítalans, sjúklinga og aðstandendur. Einnig er ljóst að verkfall hafi þar að auki í för með sér skerðingu á gæði klínískrar kennslu og komi, á þeim tímum sem verkfall er boðað, í veg fyrir klínískt nám sem nauðsynlegt er til að útskrifa lækna. Samningar eru því bráður vandi sem þarf að sinna hið snarasta.“

Í ályktuninni segir að eigi Landspítalinn að sinna þeirri þjónustu sem stofnuninni er ætluð blasir við að bæta verði kjör starfsmanna spítalans.

„Landspítalinn verður ekki rekinn án lækna. Ekki verður hann heldur rekinn án þeirra framtíðarlækna sem útskrifast á næstu árum og fylgjast grannt með framvindu samningaviðræðna LÍ og samninganefndar ríkisins. Stjórn Félags læknanema lýsir því yfir fullum stuðningi við kröfum Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands. Félagið hvetur jafnframt alla lækna til að virða verkfall á meðan á því stendur.“

Stjórn Félags læknanema segir að glufa hafi myndast í mannauð íslensks heilbrigðiskerfis.

„Íslenskir læknar erlendis sjá sér ekki fært um að flytja heim að loknu sérnámi og sérfræðilæknar hérlendis sjá sér ekki fært um að starfa hér áfram við óbreyttar aðstæður. Dýrmæt reynsla tapast við brottflutning starfsfólks og töf á heimkomu sérfræðimenntaðra lækna. Mannekla vegna viðvarandi, dræmra kjara hefur gríðarlegan kostnað í för með sér fyrir samfélagið, sjúklinga og aðstandendur þeirra.“

Stjórn Félags læknanema lýsir því yfir þungum áhyggjum á framgöngu samningaviðræðna. Félag læknanema skorar á samninganefnd ríkisins og ríkið sjálft til að leysa viðvarandi kjaravanda lækna sem starfa á Landspítalanum með því að mæta kröfum Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×