Innlent

„Kraninn fór bara í klessu"

Linda Blöndal skrifar
Ægir Óli Kristinsson, starfsmaður í nærliggjandi húsi segir að jörðin hafi titrað þegar stór byggingakrani féll á hliðina í hífandi roki í Garðabænum í dag. Mildi þykir að enginn hafi slasast þar sem kraninn fór þvert yfir bæði götu og gangstétt.  

Bark og brestir

Stöð tvö fór á staðinn og skoðaði ummerkin en hífandi rok og stormur hefur verið um allt land. Djúp lægð kom hratt upp að vesturströnd landsins í dag með hlýrri sunnanátt og úrkomu. Við Lyngás í Garðabæ fóru hviður svo mikinn í morgun að svo virðist sem þær hafi hreinlega feykt margra tonna krana niður með tilheyrandi braki og brestum.

Sat inni og jörðin titraði 

Kraninn er við nýbyggingu á staðnum en Ægir Óli sem vinnur í Lagerhúsnæði hliðiná byggingarframkvæmdunum varð var við hrunið, staddur inni á lagernum þegar kraninn hrundi. „Þetta var rétt fyrir ellefu í morgun. Ég bara sat inni og fann jörðina bara titra", sagði Ægir við fréttamann uppúr hádeginu. „Mig svona grunaði að þetta hefði verið einhver af krönunum hér við hliðiná og fór út að gá. Það var bara mulningur og steypuklumparnir undir honum voru brotnir og yfir alla götuna liggur við. Bara brak og kraninn fór bara í klessu í rauninni", sagði Ægir og segist ekki hafa séð neitt athugavert við kranana áður, að þeir væru neitt ótryggir á sinum stað. 

Vonskuveður og hlýtt áfram 

Ekki bara í Garðabæ varð tjón heldur þurfti að kalla Björgunarsveit Hafnarfjarðar út seinni part dags þar sem þakplötur losnuðu á íþróttahúsi Hauka við Ásvelli í Hafnarfirði. Og rétt fyrir hádegi voru björgunarsveitir fyrir austan fjall kallaðar út til að aðstoða tvo blauta og kalda göngumenn í Reykjadal, ofan Hveragerðis. Hvass suðlægur vindur verður áfram um landið og fram á morgundag og það er alveg örugglega ekki hundi út sigandi víðast hvar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×