Innlent

„Kolvitlaust að gera hjá lögreglu“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Lögreglan þurft að bregðast við tugum mála í nótt.
Lögreglan þurft að bregðast við tugum mála í nótt. Vísir/eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt. Á 8 klukkustunda tímabili, frá klukkan 19:00 til 03:00, komu alls 70 mál inn á borð lögreglu sem er meira en gengur og gerist á venjulegu sunnudagskvöldi. Meðal mála sem upp komu voru alvarleg líkamsárásarmál, innbrot og skemmdarverk. „Það var allt kolvitlaust að gera hjá lögreglu í gærkvöld og fram á nótt,“ eins og varðstjóri orðar það í skeyti til fjölmiðla í morgun.

Til að mynda voru tveir einstaklingar handteknir á Nýbýlavegi á öðrum tímanum í nótt eftir að lögreglumenn höfðu tekið eftir vopni í bifreið þeirra. Hinir handteknu eru sagðir hafa brugðist ókvæða við afskiptum lögreglumannanna og veittust að þeim - þannig að áverka hlutust af. Lögreglan er sögð hafa notað varnarúða, svokallað piparsprey, til að yfirbuga einstaklingana á vettvangi átakanna. Þeir voru síðan fluttir á lögreglustöð og hafa þeir mátt verja nóttinni í fangaklefa.

Aðrir tveir einstaklingar voru handteknir á Völlunum i Hafnarfirði í gærkvöldi skömmu eftir miðnætti vegna ránstilraunar. Hinn rændi tók hins vegar ráninu ekki þegjandi og hljóðalaust heldur réðst á ræningjana vopnaður hnífi. Þolandinn er sagður hafa náð að veita ræningjunum stungusár sem þó eru minniháttar. Allir einstaklingarnir þrír voru fluttir í fangageymslu og verða þeir yfirheyrðir með morgninum.

Þá var útlendingur handtekinn í Kópavogi sem sagður er hafa verið hér ólöglega í landinu - „og mátti því ekki vera inni á Schengen-svæðinu lengur,“ eins og það er orðað í skeyti lögreglunnar. Ætla má að hann verði sendur úr landi á næstu dögum.

Fangageymslur á lögreglustöðinni á Hverfisgötu eru fullar eftir nóttina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×