Innlent

„Kletturinn í hafinu“ kvaddur

Heimir Már Pétursson skrifar
Útför Halldórs Ásgrímssonar fyrrverandi forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins var gerð frá Hallgrímskirkju í dag að viðstöddum forseta Íslands, ráðherrum og þingmönnum. Enginn maður hefur gengt ráðherraembættum lengur en Halldór en hann sat á Alþingi í rúm þrjátíu ár.

Halldór Ásgrímsson lést hinn 18. maí síðast liðinn en hann fæddist á Vopnafirði hinn 8. september árið 1947 og hefði því orðið sextíu og átta ára gamall í haust. Fjölmenni var við jarðarförina en auk eiginkonu, barna og annarra fjölskyldumeðlima og vina mættu forsetahjónin, núverandi og fyrrverandi ráðherrar og þingmenn.

Þá mátti sjá sendiherra fjölmargra ríkja við útförina, eins og Bandaríkjanna, Kína og Bretlands enda gengdi Halldór embætti utanríkisráðherra í níu ár þar til hann tók við embætti forsætisráðherra árið 2004 sem hann gengdi til ársins 2006. Þar áður hafði hann verið ráðherra margra málaflokka en hann sat í ráðherrastóli í 19 ár af þeim rúmu þrjátíu árum sem hann sat á Alþingi.

Útförin var gerð að hálfu ríkisins og var hin virðulegasta en það var séra Pálmi Matthíasson sem jarðsöng. Í minningarorðum sínum sagði hann Halldór oft hafa verið kallaðan “klettinn í hafinu” bæði af samherjum og andstæðingum í stjórnmálum, enda hafi hann bæði verið traustur maður og fastur fyrir þegar á þurfti að halda.

Félagar Halldórs í Oddfellow stóðu heiðursvörð við kistu hans en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra ásamt ráðherrum úr ríkisstjórnum hans og Halldórs og fyrrverandi ráðuneytisstjóri báru kistu hans úr kirkju að lokinni athöfn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×