Bíó og sjónvarp

"Kiefer er ófagmannlegasti gæi í heimi“

Leikarinn Freddie Prinze Jr., sem lék í áttundu þáttaröð af 24 ber harðjaxlinum Kiefer Sutherland ekki góða söguna.

„Ég lék í 24 og það var ömurlegt. Ég hataði það,“ sagði Freddie í viðtali við ABC News.

„Kiefer er ófagmannlegasti gæi í heimi. Ég er ekki að baktala hann, ég myndi segja þetta við hann. Ég held að allir sem hafa unnið með honum segi það sama. Mig langaði að hætta að leika eftir þessa reynslu. Þannig að ég gerði það eiginlega.“

Prinze lék í 24 árið 2010, og svo lék hann í sjónvarpsmyndinni Happy Valley árið 2012, ef frá er talin einn þáttur af Psych.

Heimildamenn vestanhafs segja hegðun Sutherland stafa af óhóflegri áfengisneyslu hans. Sutherland á að hafa mætt fullur í tökur og á að hafa látið alla bíða eftir sér á meðan hann gerði sig tilbúinn.

Talsmaður Sutherland hafði þetta að segja:

„Kiefer vann með Freddie Prinze Jr. fyrir fimm árum og þetta er í fyrsta sinn sem hann heyrir af óánægju hans. Kiefer fannst gaman að vinna með Freddie og óskar honum alls hins besta.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×