Bíó og sjónvarp

„Khal Drogo“ kominn til Íslands

Samúel Karl Ólason skrifar
Jason Momoa. Efri myndin til hliðar er af Reykjarfirði á Ströndum.
Jason Momoa. Efri myndin til hliðar er af Reykjarfirði á Ströndum. Vísir/Getty
Leikararnir Jason Momoa og Willem Dafoe eru mættir til landsins þar sem þeir munu taka upp atriði fyrir Justice League. Tökur munu hefjast á næstu dögum. Þar að auki munu Ben Affleck og Zack Snyder vera við tökur, en þær fara fram á Ströndum.

Tökuliðið hefur lagt undir sig Djúpavík þar sem búið er að koma fyrir fjölda húsbíla og einnig verður tekið upp á Gjögri.

Momoa, sem er hvað þekktastur fyrir að leika Khal Drogo í Game of Thrones, mun leika Arthur Curry eða Aquaman, konung Atlantis. Við höfum áður séð hann bregða fyrir í stiklu sem birt var í júlí. Þar mátti einnig sjá þau Ingvar E. Sigurðsson, Kristbjörgu Kjeld, Ágústu Evu Erlendsdóttur og Salóme Gunnarsdóttur. Aquaman birtist einnig í skamman tíma í Batman V Superman.

Sjá einnig: Kristbjörg Kjeld, Ágústa Eva og Salóme einnig í Justice League

Justice League er ofurhetjuteymi sem samanstendur af Superman, Batman, WonderWoman, Aquaman, The Flash og Cyborg. Öll eru þau úr ofurhetjuheimi myndasagnaútgáfunnar DC-Comics.

Tökum í London lauk nýverið og leikstjórinn Zack Snyder birti meðfylgjandi myndband af því tilefni.

Willem Defoe mun leika vísindamanninn Nuidi Vulko, sem er bandamaður Aquaman frá Atlantis.

Ekki er vitað hvort að fleiri leikarar munu koma til Íslands vegna myndarinnar en auk áðurnefndra leikara eru Henry Cavill, Gal Gadot, Amy Adams, Amber Heard, Ezra MIller, Jeremy Irons og Ray Fisher einnig í henni.

Jason Momoa birti í morgun tvær myndir sem teknar eru á Ströndum. Ef miða má við textann með myndunum þá er hann nokkuð sáttur við veruna hér á landi.

Viðbót: Momoa hefur birt nokkrar myndir frá Íslandi á Instagramsíðu sinni. Þar segir hann Ísland vera fallegt land. Ekki ósvipað Hawaii, bara kaldara.

#dreamtime #almosthome

A photo posted by Jason Momoa (@prideofgypsies) on

My own private Iceland. Really stoked to be here Mahalo zach

A photo posted by Jason Momoa (@prideofgypsies) on

Batman-news.com birtu nýverið myndir frá Djúpavík þar sem tökur fara fram.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×