Matur

Kanilbollur með Hnetu nizza, saltaðri karamellu og salthnetum

Rikka skrifar
visir/thelma

Thelma Þorbergsdóttir heldur úti einstaklega girnilegu kökubloggi sem gengur undir nafninu Freistingar Thelmu. Hér gefur hún lesendum Matarvísis uppskrift af gómsætum kanilbollum. 

Kanilbollur með Hnetu nizza, saltaðri karamellu og salthnetum

Ca 15 bollur

350 g hveiti
40 g sykur
1 tsk salt
1 tsk kanill
12 g ger
3 egg og 1 eggjarauða
(eggjahvítan er notuð til að pensla bollurnar)
70 ml volgt vatn
150 g smjör við stofuhita
 
Aðferð
Hitið ofninn í 180 gráðu hita og setjið bökunarpappír á bökunarplötu. Setjið allt hráefnið í hrærivél og hnoðið með hnoðaranum í rúmar 20 mínútur á meðal hraða. Deigið ætti að vera orðið mjúkt og fínt. Setjið deigið í aðra skál, setjið plastfilmu yfir og látið lyfta sér í klukkustund. Hnoðið deigið örlítið í höndunum með smá hveiti. Myndið jafnstórar bollur úr deiginu, eins stórar og þið viljið og raðið á bökunarplötuna með jöfnu millibili. Einnig er gott að setja hverja bollu fyrir sig í möffinsform. Penslið toppinn á bollunum með eggjahvítunni og stráið yfir þær kanilsykri. Látið bollurnar lyfta sér í 15 mínútur til viðbótar áður en þið setjið þær inn í ofn. Bakið bollurnar í 10-15 mínútur eða þar til þær eru orðnar gullbrúnar að lit. Kælið bollurnar aðeins áður en þið setjið á þær.
 
Skerið bollurnar í tvennt. Smyrjið neðri hluta bollunnar með Hnetu Nizza. Þeytið rjómann þar til hann stendur og setjið 1-2 msk af rjóma á milli. Setjið saltaða karamellu ofan á hverja bollu á samt grósöxuðum salthnetum.
 
Söltuð karamella
100 g Pipp með karamellufyllingu
4 msk rjómi
½ tsk sjávarsalt

Aðferð
Bræðið Pipp með karamellufyllingu í potti yfir lágum hita ásamt 4 msk af rjóma og salti. Hrærið þar til súkkulaðið hefur náð að bráðna alveg.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×