Innlent

„Kæra verðandi móðir, ekki vera hrædd“

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Kæra verðandi móðir, barnið þitt getur orðið hamingjusamt, eins og ég. Og þú verður líka hamingjusöm. Er það ekki mamma?“
Kæra verðandi móðir, barnið þitt getur orðið hamingjusamt, eins og ég. Og þú verður líka hamingjusöm. Er það ekki mamma?“ VÍSIR/SKJÁSKOT
Verðandi móðir sem komst að því að barnið sem hún ber undir belti er með downs heilkenni sendi Alþjóðlegum samtökum downs fólks tölvupóst þar sem hún sagðist óttast um framtíð þess. Konan á von á syni á þessu ári.

Pósturinn barst samtökunum nú í febrúar og í tilefni Alþjóðadags downs sem er í dag ákváðu samtökin að útbúa myndband í tilraun til þess að útskýra fyrir móðurinni og öðrum hvað downs er.

Í myndbandinu tala einstaklingar með downs til móðurinnar og lýsa upplifun sinni á því að vera með downs.

Þar kemur þetta fram: „Kæra verðandi móðir, ekki vera hrædd. Hann mun geta gert alls konar hluti. Hann mun geta faðmað þig og komið hlaupandi á móti þér. Hann getur tjáð sig og sýnt þér að hann elski þig. Hann getur farið í skóla eins og allir. Hann getur lært að skrifa og getur skrifað til þín þegar hann er langt í burtu frá þér. Og hann mun geta ferðast. Hann getur hjálpað pabba sínum að gera við hjólið hans. Hann getur unnið og aflað fjár. Fyrir þá peninga getur hann boðið þér út að borða eða leigt íbúð og flutt að heiman.

Stundum verður þetta samt erfitt. Mjög erfitt og næstum því ómögulegt. En upplifa ekki allar mæður slíka stund?

Kæra verðandi móðir, barnið þitt getur orðið hamingjusamt, eins og ég. Og þú verður líka hamingjusöm. Er það ekki mamma?“

Í lok myndbandsins sjást þau sem komu fram í því faðma mæður sínar. Myndbandið er hér að neðan:


Tengdar fréttir

Er það besta sem völ er á, nógu gott?

Að fæðast með auka litning eins og einstaklingar með downs heilkenni hafa, er yndisleg viðbót við margbreytileika mannfólksins, þessir einstaklingar hafa yfir að bera svo marga góða kosti og dyggðir og bera af hvað varðar hlýju og einlægni með nærveru sinni.

Hefur kennt okkur ótrúlega mikið að eignast hana

Foreldrar fjögurra ára stúlku með downs ákáðu að taka því sem að höndum bæri þegar þau komust að því í sónar að auknar líkur væru á því að barnið þeirra væri með downs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×