Fótbolti

Jón Daði: Var fúll og reiður innra með mér

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson.
Jón Daði Böðvarsson. Vísir/ÓskarÓ
Landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson er á sínum síðustu mánuðum hjá norska félaginu Viking því hann hefur samið við þýska liðið Kaiserslautern.

Kaiserslautern vildi kaupa Jón Daða en Norðmennirnir neitar að selja hann og forráðamenn félagsins vilja frekar að íslenski landsliðsframherjinn renni út á samning og fari frítt um áramótin.

Jón Daði hefur ekki látið þetta ástand trufla sig og er að spila mjög vel Viking.

„Það gengur mjög vel hjá Viking. Við erum í þriðja sæti deildarinnar og erum að berjast um Evrópusætið. Við erum líka í undanúrslitum bikarsins og það eru því góðir tímar hjá Viking um þessar mundir," segir Jón Daði en hann viðurkennir alveg að hann vildi sjá málin þróast öðruvísi.



Fjögur tilboð frá Kaiserslautern

„Þetta er búið að vera svolítið klikkað ástand. Það eru búin að koma heil fjögur tilboð frá Kaiserslautern og ég viðurkenni það alveg að ég hefði viljað fara í sumar til að geta komist fyrr inn í þetta allt saman," segir Jón Daði og bætti við:

„Sama hvað kom frá Kaiserslautern þá harðneituðu Viking öllu og það er ekkert við því að gera. Ég þarf þá bara að reyna að klára þetta með stæl þar," segir Jón Daði. Þetta var samt svekkjandi staða fyrir hann.

„Maður var skiljanlega svolítið fúll og reiður innra með sér að geta ekki farið en svo verðum maður að átta sig á því að þetta eru bara viðskipti og svona er bransinn. Ég þurfti því að líta í eigin barm og spyrja sjálfan mig hvernig ég ætlaði að taka á þessu. Ætlaði ég að vera í fýlu eða að taka þetta með stæl og gera það sem ég get. Það er búið að takast vel," segir Jón Daði en hvenær fer hann suður til Þýskalands.

„Ég flyt væntanlega til Þýskalands 1. janúar en kannski jafnvel fyrr svo ég geti æft meira með liðinu áður en ég fer í smá jólafrí," segir Jón Daði.



Frægur klúbbur með góða sögu

Kaiserslautern er í þýsku b-deildinni og hafa verið þar síðan að liðið fékk úr Bundesligunni 2012.

„Þetta er stór klúbbur og önnur Bundesligan er sterk. Kaiserslautern er frægur klúbbur og á góða sögu. Þeir vilja upp strax aftur og líta á sig sem Bundesligu-klúbb sem þeir eru. Þetta er það sterk deild að það er erfitt að komast upp en það er markmkið liðsins," segir Jón Daði.

Kaiserslautern hefur fjórum sinnum orðið þýskur meistari, síðast vorið 1998. Jón Daði sér núna eftir ákvörðun sem hann tók þegar hann var í skóla heim á Íslandi. Hann valdi ekki þýskuna og þarf því að læra hana frá grunni.



Sér eftir að hafa valið spænskuna yfir þýskuna

„Ég tók spænskuna í skóla og fór því auðveldu leiðina sem ég sé svolítið eftir. Núna fer ég bara í það að læra þýskuna," segir Jón Daði sem vill læra þýskuna sem fyrst.

„Ég hef alltaf sett mér þá reglu að ef ég fer í nýtt land þá ætla ég að gera mitt besta til þess að læra tungumálið sem fyrst. Ég held að það sé best, bæði upp á þægindin en líka upp á virðingu fyrir klúbbnum sem maður er í," segir Jón Daði.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×