Tónlist

„Jólin eru fyrir heimskingja og fólk sem ekki getur hugsað“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
„Ég er feitari með öðruvísi hár núna, (svo ég þekkist ekki),“ segir Páll um myndina vinstra megin. „Þarna er ég jólabarn í 80sinu í Zagreb í Króatíu þar sem ég fæddist,“ segir hann um myndina til hægri.
„Ég er feitari með öðruvísi hár núna, (svo ég þekkist ekki),“ segir Páll um myndina vinstra megin. „Þarna er ég jólabarn í 80sinu í Zagreb í Króatíu þar sem ég fæddist,“ segir hann um myndina til hægri.
„Gæði upptökunnar eru léleg vegna þess að jólasveinninn hefur ítrekað hunsað beiðnir mínar um græjur. En ég skila að hann sé bissí og allt það,“ segir listamaðurinn Páll Ivan frá Eiðum.  Hann gaf í dag út jólalagið Jólin eru fyrir aumingja.

Í texta lagsins syngur Páll með annars að jólin séu fyrir aumingja, smábörn, heimskingja og fólk sem getur ekki hugsað.

„Nafnið á laginu er komið frá Ástríði Halldórsdóttur vinkonu minni,“ segir Páll og vísar í svar Ástríðar við spurningunni Ertu farin/n að huga að jólunum í dagblaðinu DV. Svaraði hún einfaldlega: „Nei, jól eru fyrir aumingja.“

„Ég sá þennan frasa, Jól eru fyrir aumingja, hjá henni Ástríði og svo var ég andvaka vegna þess að ég hélt að ég væri að fá ælupest í nótt. Þá kom lagið til mín í heild sinni á meðan ég hafði áhyggjur af yfirvofandi uppköstum. False alarm,“ segir Páll. Í laginu hvetur hann fólk einnig til að drepa dýr.

„Það er svo sem ekkert meira um lagið að segja annað en að ég hvet fólk endilega til að fórna einu dýri svo sólin komi pottþétt aftur,“ segir listamaðurinn. „Munið bara að drepa ekki eitthvað sem þið elskið. En sólin fílar það samt betur.“

Hér fyrir neðan má lesa texta jólalagsins:

Jólin eru fyrir aumingja

Jólin eru fyrir aumingja

aumingja og smábörn

Jólin eru fyrir heimskingja

og fólk sem ekki getur hugsað

En jólin þurfa ekkjað vera leim

það er alveg hægt að gera betur

Ekki vera asni og einn af þeim

sem fíla eilíft skammdegi og vetur

Nei kauptu þér hníf

og taktu eitt líf

og tryggðu að sólin komi aftur

Nei kauptu þér hníf

og taktu eitt líf

og tryggðu að sólin komi aftur






Fleiri fréttir

Sjá meira


×