Innlent

"Íslendingar eru magnaðir"

Jóhannes Stefánsson skrifar
Eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær skapaðist mikið öngþveiti í Smáralind í þegar Vine-stjörnurnar Jerome Jarre og Nash Grier boðuðu komu sína í gegnum samfélagsmiðla.

Þúsundir unglinga söfnuðust saman og mikill glundroði og gríðarlegur hávaði var í mannfjöldanum. Þetta leiddi til eignatjóns en fólk stóð uppi á bílum til að berja stjörnurnar augum auk þess sem vitni segja börn hafa orðið fyrir troðningi og meiðst í látunum.

Fréttastofa ræddi við Jerome og Nash vegna atviksins.

„Við tilkynntum að við ætluðum að hitta fólk hérna. Við héldum að það kæmu kannski hundrað manns og við ætluðum að hitta þau og taka myndir, en það komu miklu fleiri," segir Nash Grier.

„Ég veit ekki hve mörg þau voru en það var mikið margmenni þarna. Þau flykktust að okkur og þetta varð allsherjarklúður," bætir hann við.

Voruð þið handteknir?

„Nei, þeir fylgdu okkur frá múgnum og komu okkur á öruggt svæði, því það var togað í okkur og við vorum í miðri þvögunni sem í rauninni réðst á okkur," segir Nash.

Voruð þið hræddir?

„Ég var hálfhræddur á tímabili," segir Nash.

Finnst ykkur þið bera ábyrgð á því sem gerðist?

„Ég held að við berum ábyrgð á því sem gerðist, svo ég vil biðjast afsökunar fyrir okkur báða," segir Jerome Jarre.

Með mjög marga fylgjendur á samfélagsmiðlunum

Til marks um vinsældir þeirra félaga hér á landi mættu aðdáendur þeirra og biðu eftir þeim á meðan sjónvarpsviðtalinu stóð. En hvernig vissu aðdáendurnir af þeim? Jú, vegna þess að þeir höfðu látið vita á Twitter að þeir væru í viðtali.

„Við gerðum þetta fyrir áhorfendur okkar í Bandaríkjunum. Okkur grunaði ekki að svona margir horfðu á okkur á Íslandi. Ég finn til með þeim sem komu og öllum þeim sem meiddust og öllum þeim sem við gátum ekki talað við. Við vildum að við hefðum getað tala við alla," segir Jerome.

En þrátt fyrir allt eru þeir félagar gríðarlega ánægðir með Ísland.

„Íslendingar eru magnaðir. Við erum sammála um það. Við erum mjög hrifnir af því hvernig þetta samfélag virkar," segir Jerome Jarre að lokum.

Þess má geta að á meðan upptöku sjónvarpsviðtalsins stóð var Jerome að senda út þátt í gegnum símann sinn, en yfir þúsund áhorfendur fylgdust með honum og Nash í beinni útsendingu á meðan viðtalinu stóð.


Tengdar fréttir

Hver er Jerome Jarre?

Jerome Jarre gerði allt vitlaust í Smáralindinni í dag, en hver er maðurinn?

Börn slösuðust í öngþveiti í Smáralind

Smáralind troðfylltist af unglingum sem vildu bera Vine-stjörnuna Jerome Jarre augum. Tjón varð á bílum og vitni segja gríðarlegan múgæsing hafa skapast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×