Lífið

„Í eitt kvöld eru þetta hinir sönnu sigurvegarar“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aron Einar Gunnarsson og Kristbjörg Jónasdóttir fallast í faðma eftir sigurinn á Englendingum í Nice. Kvöld sem mun aldrei gleymast.
Aron Einar Gunnarsson og Kristbjörg Jónasdóttir fallast í faðma eftir sigurinn á Englendingum í Nice. Kvöld sem mun aldrei gleymast. Vísir/Vilhelm
Það er óhætt að segja að framganga strákanna okkar í karlalandsliðinu í knattspyrnu hafi brætt hjörtu fólks um heim allan og er eitt dæmi um það Ítalía.

Á Fésbókarsíðu Serie A, efstu deildar á Ítalíu, er fjallað um fagnaðarlæti strákanna okkar með stuðningsmönnum eftir leik. Myndirnar sem fylgja eru ekki í verri kantinum. 

„Sjáiði gleðina hjá þessum strákum. Stolt 320 þúsund manna þjóðar sem í gær skemmti allri Evrópu. Þarna faðma leikmenn og kyssa stuðningsmenn, bróður sinn, eiginkonu sína, uppeldisvin,“ segir á síðunni.

„Átrúnaðargoð eru aldrei ósnertanleg, líkt og draumar geta alltaf ræst,“ segir á síðunni.

„Allt er mögulegt fyrir stóra fjölskyldu sem lagði hart að sér og var skipulagt, góð lífsspeki. Það er engin tilviljun að Ísland sé komið á þennan stað og þetta er ekkert ævintýri. Sjáið gleðina í andlitum fólksins. Í eitt kvöld eru þetta hinir sönnu sigurvegarar.“

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×