Sport

Í beinni um helgina: Ekki missa af fjögur-leikjunum í dag og á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Getty
Sportstöðvarnar á Stöð 2 bjóða að venju upp á flotta íþróttadagskrá um helgina en þar verða fjöldi leikja í beinni útsendingu í ensku og spænsku úrvalsdeildununum auk risaleiks í þýska handboltanum.

Það má enginn alvöru fótboltaáhugamaður missa af fjögur leikjunum báða dagana en í dag verður El Clasico í beinni frá Santiago Bernabeu þar sem að Real Madrid tekur á móti erkifjendum sínum í Barcelona.

Sólarhring síðar verður síðan stórleikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar Manchester United tekur á móti toppliði Chelsea á Old Trafford í Manchester.

Fyrir El Clasico verður boðið upp á risaleik í þýska handboltanum þegar Rhein-Neckar Löwen tekur á móti Þýskalandsmeisturum Kiel en Löwen-liðið er með tveggja stiga forskot á Kiel á toppi deildarinnar eftir fyrstu 10 umferðirnar.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir hvað leiki verður boðið upp á í beinni um helgina.

Beinar útsendingar á Sportstöðvunum um helgina

Laugardagur

11.00 Upphitun á laugardegi    Sport 2

11.45 West Ham - Man. City    Sport 2

14.00 Liverpool - Hull        Sport 2

14.00 Sunderland - Arsenal    Sport 3

14.00 Southampton - Stoke    Sport 4

14.00 WBA - Crystal Palace    Sport 5

14.15 R-N Löwen - Kiel        Sport

16.00 Real Madrid - Barcelona    Sport

16.00 Markasyrpa        Sport 2

16.30 Swansea - Leicester    Sport 2

18.00 McGladrey Classic        Golfstöðin

20.00 Cordoba - Real Sociedad    Sport

02.00 UFC 179: Aldo vs Mendes    Sport

Sunnudagur

08.00 MotoGO í Malasíu        Sport

13.30 Tottenham - Newcastle    Sport 2

13.30 Burnley - Everton        Sport 3

16.00 Man.United - Chelsea    Sport 2

18.00 McGladrey Classic        Golfstöðin




Fleiri fréttir

Sjá meira


×