Lífið

„In love við the Kókó“: Björn Bragi hannar nýja auglýsingu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Birni Braga er margt til lista lagt.
Birni Braga er margt til lista lagt.
Grínistinn Björn Bragi Arnarsson hefur hannað nýja auglýsingu fyrir Kókómjólk. Hann birti auglýsinguna á Facebook-síðu sinni í gær. Með auglýsingunni segir hann:

„Ég er búinn að hanna nýja auglýsingu fyrir Kókómjólk. Þarf ekkert að fá borgað fyrir hana.“

Sjá einnig:Klói er orðinn köttaður

Björn Bragi notar þarna hið vinsæla lag I'm in love with the Coco með rapparanum O.T. Genasis og snýr því yfir á íslenskan veruleika. Hann tekur skjáskot úr laginu og breytir rapparanum í Klóa með myndvinnsluforriti.

Lagið hefur slegið eftirminnilega í gegn. Myndbandið hefur nú verið spilað í 64 milljónir skipta á Youtube. Þetta er fyrsta lag rapparans O.T. Genasis sem slær svona í gegn, en hann er 27 ára og var upgötvaður af Busta Rhymes.





Körfuboltaliðið Golden State Warriors átti mikinn þátt í að auka vinsældir lagsins. Leikmenn liðsins sungu lagið eftir sigurleiki framan af tímabili. Leikmennirnir birtu myndir af sér dansandi við lagið og vakti það mikla lukku á meðal NBA-aðdáenda. En um miðjan desember voru þeir beðnir um að hætta þeirri iðju, því lagið fjallar um eiturlyf.

Eftir það sem í Bandríkjunum var kallað „Coco-gate“, þ.e. eftir að leikmönnum liðsins var bannað að birta myndbönd af sér syngjandi lagið var brugðið á það ráð að breyta textanum við lagið. Textinn í viðlaginu varð: „I'm in love with the Splash Bros“, en það er viðurnefni bakvarðateymis Warriors, þeirra Stephen Curry og Klay Thompson.



Björn Bragi stendur í ströngu þessa dagana, en hann og félagar hans í grínflokknum Mið-Ísland halda nú hverja sýninguna á fætur annarri í Þjóðleikhúskjallaranum. Salurinn hefur verið fullur í hvert skipti og hafa þeir því þurft að skipuleggja aukasýningar.

Hægt er að nálgast miða á Miði.is.



Hér að neðan má sjá færslu Björns Braga, sem hann birti á Facebook-síðu sinni. Hann er duglegur að setja inn grín og glens á síðuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×