Innlent

„Hvernig dettur þér í hug að segja svona Sigga?“

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir heldur áfram að gagnrýna Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir heldur áfram að gagnrýna Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur. Vísir/GVA
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur, formannsframbjóðanda og þingmann flokksins, og fréttaflutning DV af ummælum hennar um formannskjörið sem fram fór um síðustu helgi. Ingibjörg hefur áður sagt framboð Sigríðar Ingibjargar misráðið.

„Ég leyfði mér að hafa málefnalega skoðun á því hvernig staðið var að framboði Sigríðar Ingibjargar ( Sigríður Ingibjörg Ingadóttir) en sagði að öðru leyti ekkert um framboðið. Hennar fylgisfólki mislíkaði þessi skoðun mín og ég hef ekkert við það að athuga,“ skrifar hún á Facebook.

Hún gerir athugasemdir við að ummæli sín, sem hún kallar ábendingar, og orð Sighvats Björgvinssonar, fyrrverandi þingmanns flokksins, séu sett saman. Sigríður Ingibjörg hefur kallað þau holdgervinga gamaldags hugmynda.

„Ég held raunar að þau séu dálítið eins og holdgervingar gamaldags hugmynda og þess sem er að ýta undir fylgi Pírata. Margir í Samfylkingunni sem og jafnaðarmenn utan Samfylkingarinnar hafi haft áhyggjur af framtíð hennar og talið að það þyrfti eitthvað að gera,“ sagði hún við DV.

Það er Ingibjörg afar ósátt með og segir: „Hvernig dettur þér í hug að segja svona Sigga?“


Tengdar fréttir

Sigríður býður sig fram gegn Árna Páli

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, býður sig fram til formennsku í Samfylkingunni gegn Árna Páli Árnasyni. Sigríður Ingibjörg staðfesti þetta í samtali við Vísi nú á sjöunda tímanum í kvöld.

Árni Páll hugleiðir úrbætur

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir segir skýra kröfu um breytingar í áherslum Samfylkingar en styður Árna Pál Árnason, endurkjörinn formann, til góðra verka. Aðeins eitt atkvæði skildi þau að. Árni Páll segir eins atkvæðis mun óþægilegan.

Árni Páll vann með einu atkvæði

Árni Páll Árnason var endurkjörinn formaður Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins á Hóteli Sögu nú rétt í þessu.

Mótframboð kom Árna Páli á óvart

Formaður Samfylkingarinnar í fyrsta sinn kosinn á landsfundi í dag. Framboð Sigríðar Ingibjargar kom formanninum á óvart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×