Enski boltinn

„Hvar var Alexis Sanchez?“

Dagur Lárusson skrifar
Alexis Sanchez
Alexis Sanchez vísir/getty
Graeme Souness, fyrrum knattspyrnumaður og nú álitsgjafi hjá Sky, hefur gagnrýnt Alexis Sanchez, leikmann Manchester United.

Manchester United fór með sigur af hólmi gegn Chelsea í stórleik helgarinnar í gær en Souness var ekki sáttur með spilamennsku Alexis.

„Hvar var Alexis Sanchez? Ferill hans hjá Manchester United hefur ekki ennþá komist af stað,“ sagði Souness.

„Þegar hann var hjá Arsenal þá var hann allt í öllu en núna virðist hann týndur.“

„Ég man ekki eftir neinu sem hann gerði í þessum leik.“


Tengdar fréttir

Lingard tryggði United sigur

Jesse Lingard tryggði Manchester United sigur á Chelsea í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni en með sigrinum komst United aftur upp í 2. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×