Innlent

„Hvaða rugl var þessi leiðrétting?“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Svandís Svavarsdóttir á Alþingi nú í kvöld.
Svandís Svavarsdóttir á Alþingi nú í kvöld. Vísir/Ernir
Þingflokksformenn Bjartrar framtíðar og Vinstri grænna gerðu „meirihlutinn ræður“-stefnu ríkisstjórnarinnar að umtalsefni í ræðum sínum á Alþingi í kvöld. Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, sagðist vilja færa valdið til fólksins og sagði lýðræði eiga að lifa allt árið um kring. „Lýðræði snýst ekki bara um já eða nei.“

Hún sagði að í lýðræðissamfélagi þyrfti ekki bara kosningar heldur fjölmiðla í almannaþágu, góða menntun og upplýsta borgara. „Það þarf að ryðja hindrunum úr vegi um samfélagið allt. Aðgengi er forsenda þátttöku og þátttaka er forsenda lýðræðis.“ Með aðgengi sagðist hún eiga við aðgengi að umræðu, samtökum, vettvangi þar sem ráðum er ráðið og svo framvegis.

Svandís benti á að nú styttist óðum í næstu kosningar og að þeir sem styðji ekki hægri flokkana, sms styrkveitingar og aukinn ójöfnuð ættu að hugsa sig vel um. „Stjórnarmeirihlutinn hér á Alþingi aðhyllist hugmyndina um einfaldan stjórnarmeirihluta að gömlum sið.“ Þetta telur Svandís skaðlegt fyrir lýðræðið og einnig það viðhorf sem hún hefur fundið fyrir á þinginu sem nú er að klárast að gagnrýni eigi ekki erindi.

Róbert Marshall, þingflokksformaður Bjartrar framtíðar, gagnrýndi einnig meirihlutaræðið á þingi. „Stjórnarandstaðan hefur sem betur fer getu til þess að stöðva mál og afstýra stórslysum,“ sagði Róbert en að hans mati hefur „allt verið í steik“ á Alþingi síðustu vikur. „Þið sem eruð að hlusta þið kusuð þetta þing. Ef þið eruð óánægð þá verðið þið að vanda betur valið næst.“ Róbert hvatti kjósendur til að láta ekki glepjast af loforðaflaumi og hvatti kjósendur til að kynna sér kostina betur.

Róbert benti einnig á að hann ætti rétt á sinni skoðun. „Hvaða rugl var þessi leiðrétting?“ spurði hann. „Hvílíkt bruðl. Þetta er mín skoðun, hún er ekki dónaleg, hún á rétt á sér.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×