Tónlist

„Hvað gerir maður þegar maður er fullorðinn karlmaður í strákabandi?“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Backstreet Boys eiga gríðarlega marga smelli.
Backstreet Boys eiga gríðarlega marga smelli. vísir/getty
Búið er að frumsýna nýja stiklu úr heimildarmyndinni Backstreet Boys: Show 'Em What You're Made Of sem fjallar um strákasveitina Backstreet Boys eins og nafnið gefur til kynna.

Í stiklunni kemur í ljós að líf þessara fimm stráka var enginn dans á rósum þó að sveitin geti státað af því að vera sú strákasveit sem hefur selt mest af plötum um heim allan í tónlistarsögunni.

Myndin verður frumsýnd í lok janúar á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×