Lífið

„Hún á eftir að standa sig alveg eins og drottningin sem hún er“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stuð á liðinu í Stokkhólmi
Stuð á liðinu í Stokkhólmi vísir
Nú styttist óðfluga í Eurovision-keppnina sem í ár er haldin í Stokkhólmi í Svíþjóð. Fyrra undanúrslitakvöldið verður annað kvöld og ræðst það hvort fulltrúi Íslendinga, Greta Salóme, komist áfram í úrslitin á laugardag.

Greta Salóme flytur lagið Hear Them Calling sem framlag okkar Íslendinga í Eurovision þetta árið.

Um helgina fór Greta og teymi í boð hjá Estrid Brekkan, sendiherra Íslands í Stokkhólmi, og var mikið fjör í sendiherrabústaðnum. Fjölmargri Íslendingar létu sjá sig og bauð Estrid sérstaklega börnum að koma, þar sem Eurovision væri mikil barnahátíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×