Innlent

Hryllilegt að sjá leirdrulluna leka inn og rústa húsunum

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir og Sveinn Arnarsson skrifa
Ljóst er að tjón af völdum vatnavaxtar er mikið í Fjallabyggð. Á Siglufirði stóð yfir viðamikið hreinsunarstarf en hátt í þrjátíu hús skemmdust í vatnsveðrinu í gær.  Þá ullu aurskriður miklu tjóni. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra heimsótti Fjallabyggð í dag til að kynna sér aðstæður eftir tjónið og fyrr í dag fundaði samráðshópur ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu vegna málsins.

Hálfdán Sveinsson rekur gistiheimili segir það hafa verið hryllilegt að sjá leirdrulluna leka inn. 

„Svona upp úr tólf tek ég eftir því að það er farið að renna kakóbrúnt vatn suður Lækjargötuna. Ég veit ekkert hvað er í gangi ég er í sambandi við men í bænum og þá kemur í ljós að Hvanneyraráin hefur brotist úr árfarvegi sínum og farin að renna niður eyrina. Þetta smájókst, allt þetta svæði var undirlagt, þetta var eins og stöðuvatn. Fyrir rest þá fór að leka niður undir hurðar á hótelinu. Þegar þannig var komið þá var ekkert að gera. Við vorum bara í að bjarga húsgögnum og minnka tjónið eins og kostur var. Það var hryllilegt að sjá leirdrulluna leka inn og rústa húsunum.“

Tjónið hleypur á milljónum. „Það er svolítið erfitt að segja hvað tjónið er mikið. Bara hjá mér hleypur það á einhverjum milljónum. Ég get vel trúað að það hlaupi á tugum ef ekki hundruðum í öllum bænum, bara út frá því sem ég veit núna.“

Hann segir samstöðu bæjarbúa hafa skipt öllu máli í því að lágmarka tjón af vatnavöxtunum. „Það er eitt af þessu yndislega við það að búa á svona stöðum. Fólk stendur saman þegar eitthvað bjátar á. Núna er verið að klára að hreinsa út og henda húsgögnum sem eyðilögðust, bjarga svo það skemmist ekki meira. Svo verður bara ástandið metið á morgun og mánudaginn.“

Ámundi Gunnarsson slökkviliðsstjóri jafnar hamförunum við martröð. 

„Já bara ein alls herjar martröð það var allt flóandi um allt. Drulla og skítur út um allt, segir hann og trúir því að að mörg hús séu skemmd. „Ótrúlega mörg, ábyggilega þrjátíu eða fjörutíu hús.“

Hann segir mikið hreinsunarstarf fram undan, holræsakerfi bæjarins sé stíflað af þykkum leir og tvær götur ónýtar. 

„Bærinn er að fara í það að hreinsa upp holræsakerfið og síðan þarf að lagfæra þessar götur tvær sem eru ónýtar. Síðan þarf að endurnýja þessi hús hjá borginni og endurbæta það allt saman.“  


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×