Innlent

„Hlutirnir eru augljóslega á uppleið“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. Vísir/Anton Brink
„Hlutirnir eru augljóslega á uppleið,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld. Hann tíundaði verk ríkisstjórnarinnar undanfarin þrjú ár og sagði mikilvægt að stjórnin fái tækifæri til þess að klára öll sín mál.

Bjarni sagði ekki mikinn ágreining ríkja um á Alþingi um mikilvægustu málin, en að ágreiningurinn sé oftast um hvernig skapa eigi aðstæður til þess að þau verði að veruleika. Þá hafi ríkisstjórnin náð góðum árangri; tollar hafi verið afnumdir, skattar lækkaðir og að loks búi verslun við samkeppnishæf skilyrði – sem hún hafi ekki gert þegar ný ríkisstjórn tók við.

„Með fullu afnámi vörugjalda og tolla höfum við jafnað samkeppnisstöðu verslunar þannig að hún er fyllilega samkeppnisfær við verslun og þjónustu á Norðurlöndum og það kemur íslenskum neytendum til góða. Þess ber að geta, að um þessar mundir, meðal annars af þessari ástæðu, er verðbólga í kringum eitt prósent. Það finna allir Íslendingar hversu miklu máli það skiptir að búa við stöðugleika,“ sagði Bjarni.

Viðhalda þurfi þessum stöðugleika og að fólk þurfi að geta búið við fjárhagslegt og atvinnulegt öryggi þannig að það geti tekið ákvarðanir inn í framtíðina.

Þá sagðist hann vonast til að næstu vikur muni nýtast þinginu til að ljúka stórum málum og í framhaldinu geti farið fram málefnaleg kosningabarátta svo hægt sé í sameiningu að vinna að framfaramálum fyrir land og þjóð.

Hér má fylgjast með umræðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×