Innlent

„Hljóta að vera fagleg vinnubrögð“ að kanna Keflavík eins og Hvassahraun

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Oddný Harðardóttir leiðir þingmannahóp sem vill láta skoða að flytja innanlandsflug til Keflavíkur.
Oddný Harðardóttir leiðir þingmannahóp sem vill láta skoða að flytja innanlandsflug til Keflavíkur. Vísir/Vilhelm/Stefán

„Við viljum fyrst og fremst láta meta Keflavíkurflugvöll með samsvarandi hætti og hinir kostirnir voru metnir af Rögnunefndinni,“ segir Oddný G. Harðardóttir, þingkona Samfylkingar og fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um að kanna möguleika á að færa innanlandsflug til Keflavíkur. 

Ragna Árnadóttir sagði á fundinum þegar niðurstaða nefndarinnar sem kennd er við hana sjálfa að Hvassahraun hefði meiri þróunarmöguleika en önnur svæði.Vísir/Ernir

Rögnunefndin fjallaði um nokkra mismunandi kosti fyrir innanlandsflug en ekki Keflavíkurflugvöll. „Það hljóta að vera fagleg vinnubrögð að ef það á að taka ákvarðanir út frá þessu mati Rögnunefndarinnar þá verði Keflavíkurflugvöllur að vera með,“ segir hún.

Sjálf hefur Oddný áður viðrað þá skoðun sína að innanlandsflug verði fært undir Keflavíkurflugvöll. „Ég hef sagt að ef það á að færa flugvöllinn úr Vatnsmýrinni þá sé lang hreinlegast að fara með innanlandsflugið til Keflavíkur,“ segir hún. 

Vilja skoða framtíðarmöguleikana í Keflavík

Niðurstaða Rögnunefndarinnar var að Hvassahraun, við Hafnarfjörð, væri besti staðurinn fyrir flugvöll og voru möguleikar flugvallarins til framtíðar metnir sérstaklega og sá möguleiki að millilandaflug fari líka um flugvöllinn. Oddný segir að hún og meðflutningsmenn hennar vilja að kannaðir verði þróunarmöguleikar Keflavíkurflugvallar til framtíðar til að sjá samanburðinn. 

„Ég tel augljóst að það verða ekki tveir millilandaflugvellir, annar í Keflavík og hinn í Hvassahrauni,“ segir hún. „Það verður ekki þannig að það er ekki hægt, finnst mér, að leggja til að það verði byggður nýr flugvöllur í Hvassahrauni bæði fyrir innanlandsflug og millilandaflug án þess að meta áhrifin fyrir Suðurnesin; atvinnu og íbúana þar.“

Keflavíkurflugvöllur hefur verið stærsti millilandaflugvöllur Íslands um langt skeið. Oddný segir augljóst að hann verði ekki starfræktur samhliða öðrum millilandaflugvelli í Hvassahrauni.Vísir/Pjetur

Hélt að allir gætu stutt tillöguna

Þingmennirnir sem flytja tillöguna eru allir af höfuðborgarsvæðinu eða Suðurkjördæmi, þar sem Keflavíkurflugvöllur er staðsettur. Það er þó tilviljun, segir Oddný. „Ég hugsaði þetta ekki þannig,“ segir Oddný sem segist hafa boðið öllum þingflokkum að taka þátt í að flytja málið. „Þetta er fólkið sem sagði: Já ég vil vera með.“

Oddný furðar sig á því að ekki hafi fengist stuðningur við málið úr öllum flokkum. „Auðvitað talaði ég sérstaklega við þingmenn Suðurkjördæmis, og eins og þú bendir á eru þeir þarna úr Bjartri framtíð og Framsókn, en enginn úr Sjálfstæðisflokknum og Vinstri grænir eiga ekki þingmann í Suðurkjördæmi.“

Hún segist hafa haldið að allir gætu stutt tillöguna þar sem ekki er lagt til að færa innanlandsflugið til Keflavíkur, heldur einungis að kanna möguleikann líkt og Rögnunefndin gerði við hina kostina sem nefndir hafa verið fyrir nýjan innanlandsflugvöll á Suðvesturhorninu.


Tengdar fréttir

Nýr flugvöllur í Hvassahrauni gæti tekið við millilandaflugi

Innanlandsflugvöllur í Hvassahrauni gæti síðar þróast og orðið að alþjóðaflugvelli. Þetta er ein ástæða þess að Rögnunefndin mælir með Hvassahrauni. Ólíklegt er að samstaða náist um tillögu nefndarinnar á Alþingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×