Lífið

„Hefurðu kysst apa eða sleikt flugvélasæti?“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jim Carrey er engum líkur.
Jim Carrey er engum líkur.
Grínarinn Jim Carrey var gestur Davids Letterman í spjallþættinum Late Show í gærkvöldi. Ákvað spéfuglinn að ganga úr skugga um að Letterman væri örugglega ekki sýktur af ebóluveirunni.

Carrey var með hitamæli á sér og athugaði hvort spjallþáttakóngurinn væri með hita á meðan hann spurði hann nokkurra spurninga.

Spurði Carrey hvort Letterman hefði ferðast erlendis nýlega og svaraði spjallþáttakógnurinn neitandi. Þegar Carrey hins vegar spurði hvort hann hefði kysst apa eða sleikt flugvélasæti þurfti Letterman að hugsa sig um. Eftir smá stund sagði Letterman að það gæti hafa gerst einhvern tímann og uppskar hann mikil fagnaðarlæti frá áhorfendum eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×