ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ NÝJAST 09:48

Stefnir kaupir í VÍS fyrir 360 milljónir

VIÐSKIPTI

"Harkalegur dómur“ yfir alsírskum drengjum

Vísir Innlent 09. maí 2012 12:00
  • Héraðsdómur Reykjaness. Dómarinn í málinu var að fylgja dómafordæmum þegar hann dæmdi drengina í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi, en umdeilt þykir að hann hafi ekki tekið sérstakt tillit til ungs aldurs drengjanna.
Ekki hefur tekist að staðreyna með öruggum hætti réttan aldur tveggja alsírskra drengja sem dæmdir voru í óskilorðsbundið fangelsi fyrir fölsuð vegabréf. Dómur yfir þeim er býsna harkalegur að mati dósents við lagadeild Háskóla Íslands.

Hinn 30. júní síðastliðinn voru tveir alsírskir drengir, 15 og 16 ára gamlir, dæmdir í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að vegabréfafölsun, en drengirnir komu hingað til lands hinn 25. apríl. Drengirnir eru báðir sakhæfir samkvæmt hegningarlögum, en sakhæfisaldur er 15 ár.

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndastofu, hefur gagnrýnt dóminn en hann lét hafa eftir sér í kvöldfréttum Rúv í gær að hann efaðist um að íslensk ungmenni á þessum aldrei hefðu verið dæmd í óskilorðsbundið fangelsi.

Hrefna Friðriksdóttir, dósent við lagadeild HÍ og einn helsti sérfræðingur landsins í réttindum barnsins segir í samtali við fréttastofu að um „býsna harkalegan dóm" sé að ræða, sér í lagi ef drengirnir hafi komið hingað til lands í þeim tilgangi að leita sér hælis. Hins vegar sé fölsun á vegabréfi brot sérstaks eðlis. Eðlilega hafi íslensk ungmenni aldrei verið dæmd fyrir slíkt brot hér á landi og skoða verði málið í því ljósi.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. um meðferð sakamála og það dómtekið án frekari sönnunarfærslu þar sem drengirnir tveir játuðu brot sín skýlaust. Drengirnir voru í fangelsi í Keflavík í þrjá sólarhringa eftir að dómur féll og áður en Barnaverndarstofa og Fangelsismálastofnun gripu inn í málið og komu þeim fyrir á viðeigandi stofnunum.

Að sögn Páls Winkel, forstjóra Fangelsismálastofnunar er annar drengurinn á fósturheimili en hinn á FIT-hostel í Reykjanesbæ.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur ekki tekist að sannreyna aldur drengjanna, þannig að hann sé yfir fullkominn vafa hafinn, þar sem þeir voru ekki með nein lögleg skilríki, en það var mat fulltrúa Barnaverndarstofu eftir samtöl við drengina að þeir væru á þessum aldri. Annar drengurinn talar ekki stakt orð í ensku og hinn aðeins hrafl í málinu.

Velta má fyrir sér hvernig hafi tekist að dæma í máli þeirra þar sem vafi var á hversu gamlir þeir væru, en í dómsniðurstöðu kemur fram að drengirnir séu fæddir 1995 og 1996. Því virðist slegið föstu að þetta sé réttur aldur þeirra.

Vegabréfafafalsanir eru býsna algeng brot, en dómafordæmi frá Hæstarétti eru á þann veg að brotið varði 30 daga fangelsi og að það skuli vera óskilorðsbundið.

„Samkvæmt dómaframkvæmd þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í einn mánuð. Með vísan til eðlis brotsins og hliðsjón af almennum varnaðaráhrifum refsinga eru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna," segir í dómsorði í máli alsírsku drengjanna. Hins vegar þykir umdeilt að ekki hafi verið sérstakt tillit tekið til ungs aldurs drengjanna, þótt þeir séu sakhæfir. thorbjorn@stod2.is

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Innlent 21. maí 2013 09:45

Geðgjörgæsla opnuð næstkomandi haust

Afar mikilvægt skref, segir framkvæmdastjóri geðsviðs. Meira
Innlent 21. maí 2013 09:45

Agnarsmár vágestur gerir vart við sig á ný

Birkikemba gerir mjög vart við sig annað árið í röð, en um smávaxið fiðrildi er að ræða sem stórskemmir birkitré. Meira
Innlent 21. maí 2013 09:45

360° bíllinn kominn á kreik

Sérútbúinn myndatökubíll frá Já mun á næstu vikum og mánuðum mynda helstu kennileiti og ferðamannastaði hér á landi, sem og fjölfarnar götur í þéttbýli. Meira
Innlent 21. maí 2013 09:12

Eftirlíkingum fargað undir eftirliti Tollgæslunnar

Stöðvuðu sendingu frá Kína sem innihélt eftirlíkingar af húsgögnum frægra hönnuða. Meira
Innlent 21. maí 2013 07:46

Endurupptaka máls Montt

Montt er 86 ára og var fundinn sekur um það, 10. maí, að hafa staðið fyrir morðum sem herdeildir hans frömdu á að minnsta kosti 1,771 meðlimi Maya Ixil þjóðarinnar. Meira
Innlent 21. maí 2013 07:38

Illugi og Eygló ráðherraefni

Samkvæmt óstaðfestum heimildum hafa þau Illugi Gunnarsson Sjálfstæðisflokki og Eygló Harðardóttir Framsókn verið nefnd sem hugsanleg ráðherraefni; Illugi sem menntamálaráðherra og Eygló sem utanríkisr... Meira
Innlent 21. maí 2013 07:33

Ingólfur Geir á toppinn

Fjallgöngumaðurinn Ingólfur Geir Gissurarson komst á tind Everestfjalls, hæsta fjalls í heimi, um klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma. Meira
Innlent 21. maí 2013 07:31

Lothar Schmid allur

Þýski stórmeistarinn og skákdómarinn Lothar Schmid lést um helgina, 85 ára gamall. Meira
Innlent 21. maí 2013 07:29

Sextán ára og akandi

Fór of hratt og ljóslaus að auki. Meira
Innlent 21. maí 2013 07:26

Fimmtíu þúsund króna sekt fyrir 120 kílómetra hraða

Umferðin til höfuðborgarsvæðisins var með meira móti í gær, eftir þessa fyrstu ferðahelgi ársins. Meira
Innlent 21. maí 2013 07:23

Skriðuhætta á Vestfjörðum

Það ræðst í dag hvort óhætt verður talið að opna á ný þjóðveginn um Kjálkafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum, eftir að honum var lokað á miðnætti. Meira
Innlent 20. maí 2013 20:51

„Ég er með frábæra hugmynd!“ - Hómer talar íslensku

Það er ekki lítið sem Hómer Simpson leggur á sig í Íslandsþætti Simpson-fjölskyldunnar sem sýndur var í kvöld. Meira
Innlent 20. maí 2013 19:46

Þurfa að leggja harðar að sér en karlarnir

Konur þurfa að leggja miklu harðar að sér til að njóta virðingar og komast í stjórnunarstöður innan lögreglunnar, segir lögreglukona á höfuðborgarsvæðinu. 35 af 36 aðalvarðstjórum landsins eru karlmen... Meira
Innlent 20. maí 2013 19:07

Nöfn þeirra sem létust í Þjórsárdal

Verið er að skoða miðstöðvarbúnað hússins og loftræstingu. Meira
Innlent 20. maí 2013 18:59

Rannsakað hvort brottnám stúlku í Vesturbænum tengist öðrum málum af svipuðum toga

Maðurinn sem var handtekinn vegna gruns um kynferðisbrot gegn tíu ára stúlku ætlar ekki að kæra gæsluvarðhaldsúrskurð. Meira
Innlent 20. maí 2013 18:26

Flokksráð kallað saman til að samþykkja ríkisstjórnarsamstarfið

Flokksráð Sjálfstæðisflokksins hefur verið boðað til fundar til að samþykkja ríkisstjórnarsamstarf við Framsóknarflokkinn. Verið er að boða miðstjórn Framsóknar saman einnig. Ný ríkisstjórn flokkanna ... Meira
Innlent 20. maí 2013 17:44

Íslandsþátturinn sýndur í kvöld

Simpson-fjölskyldan verður með þjóðlegra móti í kvöld klukkan 19:45 Meira
Innlent 20. maí 2013 15:24

Ræðir reynslu Íslendinga af efnahagskreppunni

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sækir í dag Alþjóðlegan leiðtogafund, Global Leadership Summit, sem Viðskiptaskóli Lundúna, London Business School, og sjónvarpsstöðin CNN efna til. Meira
Innlent 20. maí 2013 14:45

Uppsögn Láru Hönnu dregin til baka

Fréttatilkynning frá 365 Meira
Innlent 20. maí 2013 14:04

Stjórnarmyndunarviðræður langt komnar

Miðstjórn Framsóknarflokksins og flokksráð Sjálfstæðisflokksins hafa enn ekki verið boðuð til fundar til að ræða væntanlegt ríkisstjórnarsamstarf. Stjórnarmyndunarviðræður flokkanna halda áfram í dag. Meira
Innlent 20. maí 2013 13:25

Ingólfur á tindinn í fyrramálið

Everest 2013-hópurinn er nú staddur í Suðurskarði Everestfjalls í 7.950 metra hæð. Til stendur að leggja af stað á tindinn síðdegis í dag. Meira
Innlent 20. maí 2013 12:34

Ráðist á mann með hnífi í dagsetri Hjálpræðishersins

Einn maður handtekinn á staðnum. Meira
Innlent 20. maí 2013 12:14

Skoða líkamsleifar í dag

Kennslanefnd kemur saman í dag vegna líkfundar í Kaldbaksvík á Ströndum nú um helgina. Notast verður við bein og tennur til að reyna að bera kennsl á viðkomandi. Meira
Innlent 20. maí 2013 11:41

Vill meira líf í kirkjugarðinn

Heimir Björn Janusarson, umsjónarmaður Hólavallakirkjugarðs, segir að þó nokkuð sé um að fólk láti setja duftker í garðinn mætti vera enn meira gert af því. Meira
Innlent 20. maí 2013 11:04

Stefán Karl skipti sér af einelti í Vesturbænum

Tveir ungir drengir öskruðu á annan að hann væri "fituklessa“ og "helvítis hommi“. Stefán hvetur fólk til að skipta sér af. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Innlent / "Harkalegur dómur“ yfir alsírskum drengjum
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000