Lífið

„Hann er með fallegasta typpi sem ég hef séð í lífi mínu“

Lilja Katrín Gunnarsdótti skrifar
Jenny McCarthy.
Jenny McCarthy. vísir/getty
Jenny McCarthy heimsótti þáttinn Watch What Happens Live á miðvikudaginn og talaði við sjónvarpsmanninn Andy Cohen um hvernig kynlífið væri hjá henni og eiginmanni hennar, Donnie Wahlberg.

Hún fékk spurningu frá aðdáanda í þættinum sem vildi vita hvort kynlífið hefði breyst eftir að þau gengu í það heilaga þann 31. ágúst síðastliðinn.

„Án efa. Það verður betra í hvert sinn sem við njótum ásta. Hann er með fallegasta typpi sem ég hef séð í lífi mínu,“ sagði Jenny.

„Stærðin er fullkomin. Ég vil ekki fara út í of miklar lýsingar en hann passar fullkomlega inní leggöngin mín,“ bætti hún við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×