Sport

„Gunnar Nelson er konungur fólksins“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson sallarólegur eftir að ganga frá Alan Jouban í London.
Gunnar Nelson sallarólegur eftir að ganga frá Alan Jouban í London. vísir/getty
Gunnar Nelson mætti aftur í búrið eftir tíu mánaða fjarveru síðastliðið laugardagskvöld og gekk frá Bandaríkjamanninum Alan Jouban eftir 47 sekúndur í annarri lotu.

Gunnar sýndi allar sína bestu hliðar og vann sannfærandi sigur en hann er nú búinn að vinna tvo bardaga í röð eftir að pakka saman Rússanum Albert Tumenov í Rotterdam í fyrra.

Sjá einnig:Jouban greinir eigin bardaga: Það er ekkert verra en að vera með Gunnar ofan á sér

Þrátt fyrir þennan glæsilega sigur hreyfðist Gunnar ekki úr stað á styrkleikalista veltivigtarinnar í UFC en hann er áfram í níunda sæti eins og greint var frá í morgun.

Fallega er talað um Gunnar í samantektargrein enska blaðsins Metro um bardagakvöldið í Lundúnum á laugardaginn en þar eru dregin saman fimm atriði sem „við lærðum“ eftir baradagakvöldið.

Eitt af því sem við lærðum er einfaldlega að „Nelson er konungur fólksins.“

„Gunnar Nelson sneri aftur í búrið með frammistöðu sem minnti okkur á hvers vegna hann var talinn feta í fótspor Conors McGregors fyrir tveimur árum. Hann er snillingur í að taka menn niður og í gólfglímu og spilaði á Alan Jouban eins og fiðlu. Fólkið í stúkunni elskaði það,“ segir í umsögn um Gunnar og hólið hættir ekki.

Sjá einnig:Undradrengurinn lyfjaður á Instagram

„Gunnar Nelson er einn af fáum bardagamönnum sem allir aðdáendur MMA elska. Viðhorf hans, húmór og hegðun gerir hann að uppáhaldi áhorfenda. Við vonum bara að hann geti orðið meira en „cult“-hetja.“

„Gunnar Nelson hefur allt sem þarf til að verða meistari og eftir að þjálfarinn hans lagði til að næsti bardagi ætti að vera á móti Stephen Thompson sögðu allir MMA-áhugamenn: „Já, já, já, já.“

MMA

Tengdar fréttir

Undradrengurinn lyfjaður á Instagram

Maðurinn sem þjálfari Gunnars Nelson vill að hann berjist við næst, Stephen Thompson, setti inn myndband af sjálfum sér á Instagram í gær þar sem hann er ekki alveg með sjálfum sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×