Skoðun

„Góð frétt“

Oktavía Guðmundsdóttir skrifar
Þegar ég heyrði um daginn fréttaþul Rásar 1, segja frá því að splunkunýr innanríkisráðherra, Ólöf Nordal, hefði skipað starfshóp, varð ég svo glöð að mig langaði mest til að faðma fréttaþulinn.

Starfshópurinn kannar hvernig megi jafna stöðu foreldra sem fara með sameiginlega forsjá barna með tilliti til réttinda, skyldna og skráningar lögheimilis. Starfshópurinn er skipaður á grundvelli ályktunar Alþingis frá 12. maí 2014.

Það eru tvær ástæður fyrir því að það var eitthvað óvenju glaðlegt við fréttina sem ég ætla að skýra í stuttu máli.

1. Foreldrar sem fara með sameiginlega forsjá og hafa ákveðið að deila með sér ábyrgð, uppeldi og oft jöfnum samverutíma með börnum sínum, þeir bíða.

Þeir bíða eftir lagabreytingu, sem passar við nútímann. „Löggjafinn gerði ef til vill ekki ráð fyrir þessum hröðu breytingum.“ Tilvísun í grein frá mars 2013 sem ég skrifaði. https://www.visir.is/loggjafinn-og-barnid/article/2013703199975.

Þetta getur verið foreldri, sem er með börn sín í eina viku og næstu viku á eftir eru börnin hjá hinu foreldrinu, eða þá fimm daga hjá öðru foreldri og sjö daga hjá hinu, svo einhver dæmi séu tekin. Foreldrar skipta öllum kostnaði, sem lýtur að barninu, eins og vera ber. Það að aðeins lögheimilisforeldrið eigi rétt á opinberum greiðslum vegna þess að hitt foreldrið er skráð sem „barnlaus einstaklingur í kerfinu“ er auðvitað meingallað. Að hafa ekki sama rétt og lögheimilisforeldrið, þrátt fyrir að allur annar kostnaður sé jafn, skekkir myndina og veldur óþarfa ágreiningi á milli foreldra. Þessu þarf að breyta og er sú vinna að byrja til allrar hamingju.

2. Það gætir óréttlætis og ójöfnuðar á milli foreldra með sameiginlega forsjá, barna þeirra og heimila. Húsnæðiskostnaður er himinhár, það sama má segja um aðrar grunnþarfir fjölskyldu, svo sem fæði og klæði. Í ljósi ofangreinds er full ástæða til að fagna nýskipuðum starfshópi og óska honum velfarnaðar í mikilvægu réttlætismáli. Útfærðar verða leiðir til að eyða aðstöðumun, sem er til staðar á heimilum foreldra með sameiginlega forsjá og barna þeirra.

Það mun ýta undir betri samvinnu á milli foreldra og auka velferð og samverustundir barna við báða foreldra.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×