Lífið

„Gífurlegur spenningur hjá öllum“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
"Við auðvitað vonumst til þess að komast áfram,“ segir Ásgeir.
"Við auðvitað vonumst til þess að komast áfram,“ segir Ásgeir. vísir/epa
María Ólafsdóttir stígur á svið fyrir Íslands hönd í Eurovision í Vín í kvöld. Stífar æfingar munu því standa yfir fram að stóru stundinni.

Ísland er tólfta á svið í öðrum undanúrslitum Eurovision sem fram fara í kvöld. Alls etja sautján lönd kappi og komast tíu þeirra áfram. Helmingur atkvæða ræðst í símakosningu en hinn helmingurinn af atkvæðum dómnefndanna. Dómararennslið fór fram í gær og var gærkvöldið því afar mikilvægt fyrir íslenska hópinn.

„Við erum núna bara að undirbúa brottför upp í höll. Hópurinn er vel samstilltur og mikil orka og eftirvænting og gífurlegur spenningur hjá öllum, þannig að þetta leggst bara mjög vel í okkur,“ segir Ásgeir og bætir við að dómararennslið í gær hafi gengið vel. Kvöldið í kvöld sé þó jafn mikilvægt og gærkvöldið og því muni hópurinn gera sitt allra besta.

Fyrra rennslið dýrmætt

Hann segir þétta dagskrá framundan en dagurinn muni þó litast af stífum æfingum. „Dagurinn í dag er bara speglaður frá því í gær þannig að við vitum nákvæmlega hvað er að fara fram, sem er mjög gott. Það verða tvö rennsli eins og í gær en í staðinn fyrir dómararennsli er sjónvarpsútsending. Fyrra rennslið er okkur mjög dýrmætt og svona aðeins til þess að róa taugarnar fyrir stóru stundina,“ segir Ásgeir.

Ásgeir segir allt tilbúið fyrir kvöldið en vill gera sér sem minnstar væntingar. „Það er erfitt að segja við hverju maður býst. Þetta er svo mikið ólíkindatól þessi keppni en við auðvitað vonumst til þess að komast áfram," segir hann. Riðillinn í kvöld er sagður heldur sterkari en sá fyrri en Ásgeir segist lítið stressa sig fyrir því.

„Kannski eru atriðin í kvöld sterkari en þjóðirnar samheldnari en í hinu kvöldinu þannig að maður veit ekkert hvað er að fara að gerast í rauninni. Við ætlum bara að njóta og gera okkar besta.“ 

Íslandi hefur verið spáð ágætis gengi af blaðamönnum víða um Evrópu og veðbönkum. Við skipum þó ekki efstu sætin en spár benda til þess að við verðum í fimmta til tíunda sæti. Fyrra undanúrslitakvöldið fór fram á þriðjudag og komust þá einnig tíu lönd áfram. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV klukkan sjö í kvöld.



Hvaða Eurovision-lög eru best þetta árið? Taktu þátt í könnun Vísis hér.


Tengdar fréttir

Með einlægnina að leiðarljósi

„Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og það er þessi einlægni og heiðarleiki sem María hefur til að bera sem ég held að muni skila henni miklu,“ segir Anna Hjálmarsdóttir, móðir Maríu Ólafsdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×