Innlent

Gætu þurft að bíða fram undir jól

Lilý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Ríflega sex hundruð manns bíða eftir því að komast í segulómrannsóknir á Landspítalanum. Sjúklingar gætu þurft að bíða allt til jóla, en biðtíminn hefur lengst úr örfáum vikum í mánuði vegna verkfalla og uppsagna starfsmanna spítalans.

Í sumar sögðu um 25 geislafræðingar upp störfum á Landspítalanum vegna kjaradeilu þeirra og ríkisins. Hluti þeirra hefur dregið uppsagnir sínar til baka en í gær létu sautján geislafræðingar af störfum. Það er um fjórðungur þeirra geislafræðinga sem hafa starfað á spítalanum.

„Staðan er náttúrulega mjög alvarleg hjá okkur. En við erum að reyna að láta hérna deildina bara ganga og við erum búin að skipuleggja okkur og mannskapurinn er hérna til staðar. Við erum með talsvert af fólki ennþá í vinnu, þannig að þetta gengur ágætlega,“ segir Díana Óskarsdóttir deildarstjóri á röntgendeild Landspítalans.

Mikill fjöldi fólks leitar á röntgendeildina á hverjum degi eða á milli fjögur og fimm hundruð manns og hafa verkföll síðustu misseri og nú uppsagnir haft mikil áhrif á starfsemi deildarinnar.

„Við þurfum að draga úr þjónustunni með því að bóka færri sjúklinga,“ segir Díana.

Bið eftir mörgum rannsóknum hefur lengst mikið. „Lengsta biðin hjá okkur er í til dæmis segulómrannsóknir. Það hefur verið það sem er erfiðast að fylgja eftir í verkfallinu og sumarleyfinu, þar eru ansi margir sem bíða. Við erum með um sex hundruð manns á biðlista,“ segir Díana.

Þannig hefur biðin lengst úr örfáum vikum í mánuði eftir að verkföll hófust hjá heilbrigðisstarfsfólki. „Þá voru þetta kannski einhverjar þrjár, fjórar vikur í mesta lagi, en núna er þetta eitthvað fram undir jól,“ segir Díana.

Stjórnendur spítalans telja sig hafa komið til móts við kröfur geislafræðinga. Þeir vonast til að sem flestir þeirra sem hafa látið af störfum snúi aftur til baka. Díana segir áhrifin á spítalann verða mikil ef geislafræðingarnir sautján snúa ekki aftur til starfa. „Það mun hafa alvarleg áhrif á starfsemina. Það hægir á öllu hjá okkur en við munum leita allra ráða til þess að manna í þær stöður sem við þurfum að fá mannskap í,“ segir Díana Óskarsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×