Innlent

„Fyrsta mál þessarar tegundar sem rekið er fyrir dómi“

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Ákæruvaldið heldur því fram að viðskipti fjögurra fyrrverandi starfsmanna Landsbankans með eigin bréf bankans fyrir hrun hafi gefið röng og misvísandi skilaboð með það fyrir augum að halda hlutabréfaverði í Landsbankanum uppi og borið einkenni blekkinga og sýndarmennsku. Sérstakur saksóknari telur málið mikilvægt fordæmi varðandi markaðsmisnotkun.

Aðalmeðferð hófst í dag í stóru markaðsmisnotkunarmáli sérstaks saksóknara á hendur fjórum fyrrverandi starfsmönnum Landsbankans þeim Sigurjóni Þ. Árnasyni fyrrverandi bankastjóra, Ívar Guðjónssyni fyrrverandi forstöðumanni eigin fjárfestinga Landsbankans og verðbréfamiðlurunum Júlíus Steinari Heiðarssyni og Sindra Sveinssyni. Fjórmenningarnir eru ákærðir fyrir markaðsmisnotkun fyrir kaup og sölu hlutabréfa fyrir eigin reikning Landsbankans á tímabilinu 1. nóvember 2007 - 3. október 2008 í hlutabréfum útgefnum af bankanum sjálfum. Ákæruvaldið heldur þvífram að viðskiptin hafi gefið röng og misvísandi skilaboð með það fyrir augum að halda hlutabréfaverði í Landsbankanum uppi og borið einkenni blekkinga og sýndarmennsku.

Umrætt mál var stundum kallað „allsherjar markaðsmisnotkun“ í fjölmiðlum meðan það var til rannsóknar en það hugtak á sér enga stoð í íslenskum lögum. Í raun er um að ræða markaðsmisnotkun sem stendur yfir langt tímabil.

Brot fjórmenninganna geta varðað sektum eða allt að sex ára fangelsi. Til að sakfella fyrir markaðsmisnotkun dugir gáleysi samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti ólíkt því sem gildir um auðgunarbrot í hegningarlögum þar sem gerð er krafa um ásetning. Á mannamáli þýðir þetta að hægt er að sakfella ákærðu fyrir brotin þótt þeir hafi framið þau óvart, eða af misgá.

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, telur að þetta tiltekna mál sé mikilvægur prófsteinn varðandi túlkun á markaðsmisnotkunarákvæði laga um verðbréfaviðskipti.

„Þetta er fyrsta mál þessarar tegundar sem rekið er fyrir dómi og er svolítill prófsteinn á mál af þessu tagi. Það hafa ekki farið alveg sambærileg mál og þetta fyrir dóm. Þannig að þetta veðrur fordæmisgefandi,“ segir Ólafur Þór.  

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×