Sport

„Fullkomnun fær aldrei uppreisn æru“ | Sjáðu geggjaða auglýsingu með Rondu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ronda Rousey er alvöru.
Ronda Rousey er alvöru. vísir/getty
Ronda Rousey, ein af ofurstjörnunum í UFC, hefur ekki barist síðan hún tapaði fyrir Holly Holm í bardaga þeirra um Bantamvigtarbelti kvenna 15. nóvember á síðasta ári.

Rousey var illa farin á líkama og sál eftir bardagann og vildi taka sér frí, meðal annars til að sinna öðrum verkefnum eins og kvikmyndaleik.

Nú eru átta mánuðir síðan hún barðist og því hlýtur að styttast í endurkomuna. Nýir eigendur UFC vilja vafalítið fá hana sem fyrst í hringinn og ef eitthvað má lesa úr nýrri auglýsingu hennar fyrir Rebook er líklega stutt í að hún snúi aftur í búrið.

Ný herferð Rebook kallast Perfect Never eða aldrei fullkomin og Ronda er meira en lítið sátt með að vera ekki fullkomin.

„Fullkomnun fær aldrei alvöru tækifæri til að láta reyna á sig. Fullkomnun fær aldrei að þagga niður í gagnrýnendum sínum. Fullkomnun fær aldrei  uppreisn æru. Þannig, já, það truflar mig ekkert að vera ekki fullkomin,“ segir Ronda í þessari geggjuðu auglýsingu sem má sjá í spilaranum hér að neðan.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×