Innlent

„Fullkomlega ljóst að atburðirnir geta ekki hafa átt sér stað með þessum hætti“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Þekkt mynd frá réttarhöldunum. Óhætt er að fullyrða að Guðmundar- og Geirfinnsmálin hafi heltekið þjóðina á löngu tímabili.
Þekkt mynd frá réttarhöldunum. Óhætt er að fullyrða að Guðmundar- og Geirfinnsmálin hafi heltekið þjóðina á löngu tímabili. visir/bragi guðmundsson
Lögmenn sem gæt hagsmuna þeirra sem voru sakborningar í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum segja rétt að tala um að dómsmorð hafi verið framið í málefnum sakborninganna sex. Þeir segja ómögulegt að atburðurinn geti hafa atvikast líkt og tilgreint er í dómnum yfir fólkinu.

„Eftir að ég kynnti mér þetta mál á sínum tíma þegar ég var að vinna fyrir Sævar Marinó [Ciesielski] á öldinni sem leið þá kynnti ég mér ekki eingöngu gögnin sem lágu fyrir Hæstarétti heldur öll þau gögn sem gat náð til. Þar voru kannski merkastar fangelsisdagbækurnar úr Síðumúla,“ segir Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Erlu Bolladóttur sem dæmd var í þriggja ára fangelsi fyrir hlutdeild sína í málinu.

Ragnar Aðalsteinsson og Lúðvík Bergvinsson.vísir/hmp
„Eftir að ég hafði kynnt mér öll þessi gögn þá varð mér fullkomlega ljóst að atburðirnir gátu ekki hafa verið með þeim hætti sem dómstólarnir, bæði Sakadómurinn í Reykjavík og Hæstiréttur, töldu. Ég gat auðvitað ekki vitað hvað gerðist en ég gat séð það, og það var fullkomlega öruggt, að það gerðist ekki með þeim hætti sem gert var ráð fyrir í dómnum,“ bætir Ragnar við, en hann ræddi þessi mál í Víglínunni á Stöð 2.

Lúðvík Bergvinsson, lögmaður Tryggva Rúnars Leifssonar og Sævars Ciesielski, sem dæmdir voru í þrettán og sautján ára fangelsi,   tekur undir orð Ragnars.

„Staðreyndin í þessu máli er sú að það eru engin lík. Það er enginn brotavettvangur. Það er ekkert mótíf. Það er ekki nokkur skapaður hlutur nema þessir framburðir sem um ræðir og þeir eru byggðir á það veikum grunni að það er ekki hægt að tala um þetta með öðrum hætti en að þarna hafi verið framið – þú notaðir sjálfur orðið, dómsmorð.“

Viðtalið við Ragnar og Lúðvík má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×