Innlent

„Förum ekki kosningabaráttu án þess að vera búin að leggja eitthvað fram um verðtrygginguna“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Silja Dögg Gunnarsdóttir
Silja Dögg Gunnarsdóttir vísir/pjetur
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, segist hafa þungar áhyggjur af því að afnám verðtryggingar sé enn ekki komið á skrið. Málið sé enn á borði fjármálaráðuneytisins og að flokkurinn hafi ekki fengið neitt í hendurnar því tengdu. Hún segir flokkinn ekki reiðubúinn í kosningar að ári liðnu fari ekki að draga til einhverra tíðinda.

„Við höfum mjög miklar áhyggjur og erum ekki að fara í kosningabaráttu án þess að vera búin að leggja eitthvað fram um verðtrygginguna. Það bara kemur ekki til greina,“ sagði Silja Dögg í Sprengisandi í dag, en eitt af stóru kosningaloforðum Framsóknarflokksins fyrir síðustu kosningar var afnám verðtryggingar á neytendalánum.

Eitt ár stuttur tími í pólitík

Hún vísaði til skýrslu starfshóps um verðtrygginguna sem lögð var fram árið 2014 um mögulegar leiðir til afnáms verðtryggingar, eða til að draga úr vægi hennar. Verkefnið sé enn á borði fjármálaráðuneytisins.

„Við höfum mjög miklar áhyggjur í okkar þingflokki, ég get alveg sagt ykkur það, af því að það sé ekkert komið fram úr fjármálaráðuneytinu. Þar er verkefnið að draga úr vægi verðtryggingar, eða afnema hana, út frá þessari skýrslu sem unnin var á sínum tíma, sem margir þekkja og við erum ekki búin að fá neitt í hendurnar. Það er rúmt ár í kosningar sem er stuttur tími í pólitík. Við erum ekki tilbúin til að fara í kosningar aftur án þess að hafa komið með neitt fyrir kjósendur um þetta, ég get bara fullyrt það.“

Þingið taki málið í sínar hendur

Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar, sagðist í samtali við Vísi í vikunni ætla að beita sér fyrir því að þingið taki málin í sínar hendur fari ekki að draga til tíðinda. Hann sagði þingið geta sett málið á dagskrá og afgreitt það án aðkomu ríkisstjórnarinnar.

„Ef það er meirihluti fyrir því í þinginu að gera eitthvað í þessa veruna, að afnema verðtrygginguna eða slíkt, þá hefur þingið náttúrulega úrslitavaldið í því og getur haft frumkvæði og gert það. Það hefur komið fram frumvarp á vegum tveggja þingmanna úr Samfylkingunni þar sem er með mjög einföldum hætti lagt bann við nýjum verðtryggðum lánum,“ sagði hann.

Viðtalið við Silju má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×