Erlent

"Fólk bregst ekki við fyrr en það sér lík“

Pore Yalma ásamt dóttur sinni, Naforé, fjögurra ára Naforé var lögð inn á sjúkrahúsið í Kaya fyrir ellefu dögum, alvarlega vannærð. Barnaheill greiða fyrir lækniskostnað Naforé, eins og allra annarra barna undir fimm ára aldri í Búrkína Fasó.
Pore Yalma ásamt dóttur sinni, Naforé, fjögurra ára Naforé var lögð inn á sjúkrahúsið í Kaya fyrir ellefu dögum, alvarlega vannærð. Barnaheill greiða fyrir lækniskostnað Naforé, eins og allra annarra barna undir fimm ára aldri í Búrkína Fasó.
Gríðarleg hungursneyð vofir yfir Vestur-Afríku, en þar hafa rigningar brugðist, miklir þurrkar herjað á íbúa og ítrekaður uppskerubrestur fylgt í kjölfarið. Héðinn Halldórsson er á svæðinu og segir viðbrögð við ástandinu langt frá því að vera nógu hröð.

„Þetta er eiginlega tifandi tímasprengja. Næstu tveir mánuðir eru afgerandi. Þetta getur ekki annað en versnað. Við erum núna mitt á milli uppskera, þetta er það sem kallað er „magurt” tímabil,“ segir Héðinn Halldórsson, fjölmiðlatengill fyrir samtökin Barnaheill.

Hann segir eina milljón manna standa frammi fyrir alvarlegri vannæringu í níu löndum Vestur-Afríku. Verst telur hann ástandið í Níger og Búrkína Fasó, en Héðinn er staðsettur í Búrkína Fasó þessa stundina.

Héðinn segist afar sleginn yfir ástandinu. Hann bendir á að eitt barn af hverjum tíu sem búi á svæðinu, sé nú þegar alvarlega vannært og fólk orðið verulega örvæntingarfullt.

„Ég hef séð að fólk er að bregða á algjör neyðarráð. Það er verið að taka börn úr skólum svo þau geti aflað tekna eða matar. Fólk borðar einu sinni á dag, mjög næringarlítinn mat, af því að það reynir að þrauka þetta tímabil og sker við nögl þann litla mat sem það hefur.

Fólk reynir líka að selja kindur og geitur, sem er mjög neikvæð aðferð til að komast af. Það er skammtímalausn, því þegar búið er að selja allan stofninn er ekkert eftir. Hvorki matur, peningar né bústofn. Þá er það bara dauði sem blasir við.“

Héðinn segir alvarlegt hversu lengi umheimurinn og hjálparsamtök voru að taka við sér.

„Viðbrögðin hafa verið einhver en þau hafa ekki verið nógu hröð. Það sem þarf að gerast er að fá aukið fjármagn og það þarf athygli í fjölmiðlum. Fólk bregst ekki við fyrr en það sér lík á sjónvarpsskjá.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×